149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[15:57]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil hefja mál mitt á að þakka hv. þingmanni fyrir ræðu hennar og það var leyfi ég mér að segja gott að heyra þann bjartsýnistón sem einkenndi hana. Það eru fleiri bjartsýnir hér en hv. þingmaður, en þeir vilja stíga gætilega til jarðar, ekki síst þegar kemur að álitaefnum varðandi stjórnarskrána.

Herra forseti. Við erum með alveg framúrskarandi álitsgerð sem er uppfull af viðvörunarorðum um að hin ráðgerða aðgerð, þ.e. að falla frá hinum stjórnskipulega fyrirvara, muni sem sagt fela í sér að sú innleiðing á m.a. reglugerðum 713/2009 og 714/2009 og 37. gr. í tilskipun 72/2009 geti haft sérstök vandamál í för með sér.

Í álitsgerðinni fær reglugerð 713/2009 sérstaklega viðamikla umfjöllun, en þar segir sömuleiðis að ákvæði reglugerðar 714/2009 kunni að vekja upp hliðstæð stjórnskipuleg álitaefni og heimildir ESA til að taka lagalega bindandi ákvarðanir samkvæmt 8. gr. reglugerðar nr. 713/2009.

Að hve miklu leyti tekur sú lausn sem hér er lögð fram mið af þessum ábendingum? (Forseti hringir.) Hvernig er tekið tillit til þeirra stjórnskipulegu álitaefna í reglugerð 714/2009, hvernig ætlar ríkisstjórnin að bregðast við þeim? (Forseti hringir.) Veit hún almennt hver þessi álitaefni eru?