149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[16:00]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta er auðvitað eitt af þeim málum sem hafa hvað mest verið í umræðunni þegar við höfum verið að innleiða löggjöf Evrópusambandsins. Við tókum það sérstaklega fyrir varðandi fjármálamarkaðinn, þá flóknu pakka. Eins og ég fór yfir í ræðu minni komst stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis að þeirri niðurstöðu, þegar hún fór yfir málið á sínum tíma, að innleiðingin feli í sér framsal sem sé vel afmarkað á takmörkuðu sviði og fyrirsjáanlega ekki verulega íþyngjandi fyrir íslenska aðila.

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd komst að þeirri niðurstöðu að þetta væri í lagi. Það hefur fjöldi annarra sérfræðinga farið yfir málið líka og komist að sömu niðurstöðu. Þrátt fyrir það ákvað hæstv. ráðherra að koma ekki fram með málið fyrr en núna.

Hv. þingmaður vitnaði í álitsgerð Friðriks Árna Friðrikssonar Hirst og Stefáns Más Stefánssonar þar sem segir, með leyfi forseta:

„Möguleg lausn gæti falist í því að þriðji orkupakkinn verði innleiddur í íslenskan rétt en með lagalegum fyrirvara um að ákvæði hans um grunnvirki yfir landamæri, t.d. 8. gr. reglugerðar nr. 713/2009, öðlist ekki gildi, enda er slíkum grunnvirkjum ekki fyrir að fara hér á landi. Grunnforsenda þessarar lausnar væri þá sú að þriðji orkupakkinn leggi ekki skyldur á Ísland til að koma á grunnvirkjum landamæri, ákvörðun um það alfarið á forræði Íslands. Ísland tæki ákvörðun um að leggja grunnvirki yfir landamæri, yrðu ákvæði þriðja orkupakkans um grunnvirki yfir landamæri tekin að nýju til skoðunar og þá m.a. með tilliti til þess hvort þau samrýmist stjórnarskránni.“

Með öðrum orðum, þetta er eitt af því sem við erum að taka út af borðinu núna. Við erum ekki að fjalla um þessa þætti núna við innleiðingu og við erum að tvítryggja okkur með þessu. Að vísu segja þessir ágætu fræðimenn í lok málsgreinarinnar: „Þessi lausn er þó ekki gallalaus.“

Ég mun klárlega spyrja þá að því þegar þeir koma á fund utanríkismálanefndar til að fjalla um þetta mál, hverja þeir telji vera helstu gallana.