ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Ég vil spyrja hv. þingmann aðeins út í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins frá 13. júlí 2009 um að koma á fót samstarfsstofnun eftirlitsaðila á orkumarkaði, svokallaðri ACER, stofnun með aðsetur í Slóveníu. Í 5. tölulið þessarar reglugerðar kemur fram að ekki sé hægt að gera fyrirvara eða hindranir.
Ég ætla að lesa hér upp, með leyfi forseta, þennan tölulið í reglugerðinni en þar segir:
„Aðildarríkin skulu vinna náið saman og fjarlægja hindranir í vegi viðskipta með raforku og jarðgas yfir landamæri í því skyni að ná fram markmiðum bandalagsins á sviði orku.“
Skýrara getur þetta ekki verið. Með samþykkt þriðja orkupakkans skal „fjarlægja hindranir í vegi viðskipta“ með raforku yfir landamæri.
Þá vil ég spyrja hv. þingmann: Hvað telur hv. þingmaður að við getum staðið lengi á því að banna að það verði lagður sæstrengur hingað til lands? Í ljósi þessarar reglugerðar sem segir að við eigum að „fjarlægja hindranir í vegi viðskipta með raforku“ yfir landamæri. Kemur þá ekki þessi fyrirhugaða lagasetning til með að stangast á við EES-samninginn, lagasetning þess efnis að hér verði ekki lagður sæstrengur?