149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[16:07]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Hann spyr út í þessa margumræddu stofnun, ACER, sem er falið það verkefni að skera úr um deilumál milli landsbundinna eftirlitsyfirvalda er varða grunnvirki sem ná yfir landamæri. Ef eftirlitsstofnanir í, segjum Noregi og Svíþjóð, geta ekki komið sér saman um einhverja hluti … Nei, fyrirgefið, ég ætla að taka frekar Svíþjóð og Finnland, lönd innan Evrópusambandsins. Þá myndi ACER væntanlega skera úr um það.

Það er auðvitað einn markaður þarna úti á meginlandinu fyrir raforku. En við erum eyland og við tengjumst ekki meginlandinu í þeim efnum. Þar af leiðandi hefur ACER ekkert vald hér. Ef til þess kæmi einhvern tíma að einhver myndi taka ákvörðun um að það væri góð hugmynd að leggja sæstreng — þá notumst við við tveggja stoða kerfið eins og samið hefur verið um. Þannig að það væri í rauninni ekki ACER heldur Eftirlitsstofnun EFTA sem tæki það til sín.

Hv. þingmaður spyr hversu lengi ég telji að við getum staðið á því að leggja hér ekki sæstreng. Svo lengi sem það er ekki vilji Alþingis að hér verði lagður sæstrengur verður ekki lagður sæstrengur. Ég held að það sé alveg skýrt. Skýrara getur það ekki verið með þeim fyrirvörum sem við höfum nú gert. Evrópusambandið hefur engin skipulagsvöld hér á Íslandi. Engin völd til að koma hingað með sæstreng og soga frá okkur orkuna og tengja okkur við þá sem framleiða orku, ekki nokkur einustu.

Þannig að svarið við þessu er alveg skýrt. Á meðan Alþingi Íslendinga vill ekki að hér verði lagður sæstrengur og tengdur við orkuna á meginlandinu verður það ekki gert.