149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[16:09]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég held að hv. þingmaður hafi ekki alveg skilið fyrirspurnina. Hún er ósköp einföld: Er þetta ekki hindrun? Reglugerðin segir að það sé bannað að setja hindranir í veg fyrir viðskipti með raforku og jarðgas yfir landamæri. Erum við ekki hér með að hindra það? Stangast þetta ekki á við EES-samninginn?

Þessar hindranir — eða þessi trygging sem meiri hlutinn leggur hér til með því að setja sérstök lög um að ekki verði farið í sæstreng. Síðan kemur hingað aðili, örugglega, og vill fara að hefja rannsóknir og leggja sæstreng. Veifar hann ekki þessari reglugerð? Segir bara: Þetta er óheimilt, ég má leggja sæstreng, annars eruð þið að brjóta gegn EES-samningnum.

Ég held að þetta sé kjarni málsins. Ef hv. þingmaður gæti svarað þessu.