149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[16:10]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta ákvæði á við um grunnvirki sem þegar eru til staðar. Það er alveg skýrt að við ætlum ekki að leggja slík grunnvirki, þau eru ekki til staðar og það stendur ekki til að leggja slík grunnvirki. Þannig að þá á þetta einfaldlega ekki við.