ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir ræðuna. Ég get þó ekki tekið undir með henni um að öllum spurningum hafi verið skýrt og skilmerkilega svarað. Það er einmitt þess vegna sem við erum hér enn. Þá vil ég einnig benda hv. þingmanni á að það er alls ekki okkar að sannfæra hana um að þetta sé svo gott. Það er hlutverk hennar og þeirra sem fylgja málinu að sannfæra þá sem hafa efasemdir, m.a. þingmenn Miðflokksins og gríðarlega hátt hlutfall þjóðarinnar um að þetta haldi og enn sem komið er hefur það ekki tekist.
Mig langar líka að spyrja hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur, bara af forvitni af því að ég hef þessar miklu efasemdir: Eru stjórnvöld búin að gera einhvers konar áætlanir eða meta það og gera áætlun um bótakröfur sem kunna að falla á hendur íslenska ríkinu ef þingsályktunartillaga um orkupakka þrjú verður innleidd og svo kemur síðar í ljós að reglugerð 713/2009 brýtur í bága við stjórnarskrá? Verði vafi okkar margra á rökum reistur á seinni stigum og það kæmi í ljós, hafa þá stjórnvöld undirbúið sig og lagt eitthvert mat á hvaða bótakröfur kunni að falla á íslenska ríkið í kjölfarið?