ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hlutverk mitt og annarra þingmanna hér virðist vera að sannfæra hv. þingmenn Miðflokksins. Ef það er þannig að við eigum að sannfæra einhvern þá þarf fólk líka að hlusta. Umræðan í gær og að miklu leyti í dag hefur endurtekið sig. Farið í hring eftir hring. Þannig að hér eru þingmenn, bæði hv. þingmenn meiri hlutans og minni hlutans, of uppteknir við að tala en minna uppteknir við að hlusta.
Hv. þingmaður. Ég hef sannarlega lagt mig fram um að reyna að hlusta á áhyggjuefni hjá hv. þingmönnum Miðflokksins sem hafa fyrst og fremst staðið hér og haldið uppi rökræðum gegn því að við eigum að samþykkja þessa þingsályktunartillögu. Ég hygg að við munum fjalla vandlega um þau sjónarmið í þingnefndinni. Ég segi þó að eftir því sem ég les mér meira til um þetta ágæta mál verð ég sannfærðari um að ekkert sé að óttast. Þau rök og sá ótti við að annaðhvort séum við hér að brjóta gegn stjórnarskránni, að við séum að ganga illa um auðlindir okkar eða að tryggja ekki yfirráð íslensku þjóðarinnar yfir auðlindum okkar — ég er ekki sannfærð um það.
Við höfum mörg álit sem benda til þess að innleiðing á þessari reglugerð brjóti ekki í bága við stjórnarskrána. Engin haldbær rök hafa enn komið fram sem benda til þess. Að sjálfsögðu skrifaði ég eins og aðrir hv. þingmenn undir eið þess efnis að ég fylgdi stjórnarskránni og ef fram koma einhver haldbær rök um þetta mál þess efnis í umfjöllun þingsins, þá efast ég ekki um að við þingmenn myndum skipta um skoðun eða finna aðrar leiðir.