ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég skal reyna að taka til mín ábendingarnar um að hlusta betur. Ég hef þó lítið gert annað í sólarhring en að reyna að hlusta. Ég hef tjáð mig lítillega en mestmegnis setið og hlustað. Það hefur einfaldlega ekki tekist að eyða efanum í hjarta mínu og mér þykir málið það stórt að mér finnst eðlilegt að halda áfram að rökræða það þangað til að ég er sannfærður, sem ég er ekki enn. Enda hefur fram komið í álitsgerð Stefáns Más Stefánssonar og Friðriks Árna Friðrikssonar Hirst að reglugerð 714 veki upp hliðstæð stjórnskipuleg álitaefni og reglugerð 713/2009.
Komið hefur fram, og kom ágætlega fram áðan í ræðu hv. þm. Jóns Þórs Þorvaldssonar, að sérfræðingarnir leggja til og benda á leið en velja svo aðra. Það er auðvitað afar sérstakt. Á því hafa ekki komið nægjanlega haldgóðar skýringar enn þá. Á meðan svo er verður hv. þingmaður að sætta sig við að ég haldi áfram að spyrja.