ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Ég skal vel sætta mig við að hv. þingmaður haldi áfram að spyrja vegna þess að við erum einmitt í þessum sal til að ræða málin og brjóta þau til mergjar. Hv. þingmaður vísaði í álitsgerð sérfræðinga sem mikið hefur verið rætt um í dag. Jú, þar er bent á tvær mögulegar lausnir, annars vegar að segja nei og vísa þessu máli aftur inn í sameiginlegu nefndina. Og þá meina ég aftur vegna þess að við hér á þingi höfum sagt að það sé í lagi að taka þetta upp í samninginn og þess vegna var það gert í sameiginlegu EES-nefndinni. Hins vegar er það leiðin sem hér er verið að fara. Það er sú leið sem hæstv. utanríkisráðherra hefur veðjað á. Það er sú leið sem ég styð þangað til bent verður á annað. Því að hin leiðin sem nefnd er veit ég ekkert hvað þýðir.
Virðulegur forseti. Ég veit ekkert hvað það þýðir að fara aftur inn í sameiginlegu EES-nefndina með þetta mál og segja: Nei, við erum ekki alveg tilbúin. Nú viljum við aðeins velja úr súkkulaðikassanum: Við viljum þennan mola en ekki þennan mola. Ég stend sannarlega með því að við séum hluti af EES og að við stöndum við þann samning. Þetta er hluti af því.