ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Það hefur verið áhugavert að fylgjast með þeirri umræðu sem hefur skapast hér á landi um áhrif þriðja orkupakkans sem við erum loks að fjalla um. Eins og fram hefur komið í umræðunni hefði hún sannarlega verið skiljanlegri þegar fyrri orkupakkarnir voru til umfjöllunar, en í þeim voru mun umfangsmeiri breytingar gerðar á umhverfi orkumála en munu verða með þeim þriðja. Því hefur reyndar verið haldið fram að orkuverð hafi hækkað hér á landi eftir samþykki fyrri orkupakkans, en eins og kemur fram í skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands hafa áhrifin verið frekar til lækkunar á verði frá því að sá ágæti pakki var samþykktur, a.m.k. stuðlað að því að verðið hækkaði ekki í samræmi við verðlag, bara svo það komi fram. Þriðja orkupakkanum er ætlað að klára að skipa innri orkumarkað Evrópusambandsins fyrir jarðgas og raforku. Innri orkumarkaðnum er ætlað að auka samþættingu innviða, stuðla að samkeppni og lægra orkuverði og auðvitað, eins og er í sjálfu sér eitt af upphaflegum markmiðum Evrópusamstarfsins, að tryggja orkuöryggi í Evrópu.
Í þriðja orkupakkanum er sömuleiðis tenging við 2020 markmiðin, auk þess sem lögð er áhersla á valdeflingu viðskiptavinarins. Orkupakkar Evrópusambandsins hafa ef eitthvað er tryggt aukna og almenna neytendavernd og aukið gegnsæi á sviði orkumála og það eru hagsmunir sem má ekki gera lítið úr. Þannig fær Orkustofnun með innleiðingu þriðja orkupakkans aukið eftirlitshlutverk og sömuleiðis sterkara og skýrara umboð til að krefjast úrbóta í þágu neytenda.
Af umræðunni að dæma mætti halda að þetta væri glænýtt mál sem hefði enga umfjöllun fengið áður. En eins og kemur fram í greinargerð þingsályktunartillögunnar hafa nefndir Alþingis verði upplýstar um efni þriðja orkupakkans reglulega með minnisblöðum frá og með árinu 2010. Þannig komst atvinnuveganefnd að þeirri niðurstöðu í október 2014 að þörf væri á aðlögunum áður en gerðirnar yrðu teknar upp í EES-samningnum, sem var gert, og tókst að semja um þær aðlaganir. Þá tók ACER, samstarfsstofnun eftirlitsaðila á orkumarkaði, formlega til starfa árið 2011 og hefur því nú verið starfandi í átta ár. Hlutverk stofnunarinnar má í stuttu máli skýra sem svo að hún eigi að tryggja sem besta nýtingu á sameiginlegu flutningskerfi orku milli aðildarlanda ESB og sömuleiðis orkuöryggi.
Þess má geta að á ársfundi Orkustofnunar í síðustu viku hélt, og ég vona að hann fyrirgefi mér framburðinn á nafninu hans, Alberto Pototschnig, starfandi forstjóri ACER, erindi og kom m.a. fram að aðeins aukin samhæfing við dreifingu á orku frá þeim tíma sem ACER tók við hefur aukið hagkvæmni um 1 milljarð evra á ári.
Starfsemi ACER snertir þó Íslendinga í raun takmarkað, jafnvel þó að lagður verði sæstrengur, enda erum við því miður ekki aðilar að ESB og þar með ekki aðilar að ACER. Mun Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, sinna hlutverki ACER gagnvart EES-löndunum. Hins vegar verður sannarlega samstarf íslenskra stofnana við stofnunina, eins og við aðrar evrópskar stofnanir. Þá má nefna að valdheimildir stofnunarinnar, þ.e. ESA, lúta aðeins að þeim aðstæðum ef eftirlitsstjórnvöldum, ríkjunum sjálfum, hafi mistekist að komast að samkomulagi um atriði sem lúta að aðgangi fyrirtækja að samtenglum milli ríkja, virkar sem eins konar gerðardómur.
Ýmsir hafa tjáð þær áhyggjur sínar að ACER eigi að hafa skoðun á niðurstöðu Eftirlitsstofnunar EFTA og jafnvel skrifa drög að ákvörðunum þó að ferlið verði í höndum ESA. Í álitsgerð Skúla Magnússonar, dósents við lagadeild Háskóla Íslands, er hins vegar bent á þá staðreynd að ESA hefur neitunarvald gagnvart tillögum ACER og er þá farið með málið samkvæmt 111. gr. EES-samningsins, sem þýðir í raun að engin ákvörðun verður tekin nema með samþykki allra EFTA-ríkjanna í sameiginlegu EES-nefndinni. Það er því ansi langt seilst að halda því fram að ESA sé áhrifalaus, þvert á móti er ljóst að formlegt ákvörðunarvald er í höndum stofnunarinnar. Ég ítreka þó að ekki kemur til þessa nema samtenging raforkukerfis okkar yfir landamæri komist á og ef deilumál koma upp.
Frú forseti. Í stuttu máli sagt og á mannamáli þá falla hvorki Noregur né Ísland undir valdsvið ACER. Þetta kom sömuleiðis skýrt fram í máli starfandi forstjóra ACER á fyrrnefndum ársfundi Orkustofnunar. Ef Ísland tengist Evrópska orkunetinu einhvern tímann, sem getur auðvitað gerst, og ef það kæmu upp deilur milli eftirlitsstofnunar Íslands, þ.e. Orkustofnunar og viðkomandi Evrópulands, sem yrði reyndar líklega Bretland sem er að bögglast við að reyna að komast út úr ESB, þá færi það fyrir Eftirlitsstofnun EFTA en ekki ACER.
Frú forseti. Ef þetta snýst um framsal fullveldis og stjórnarskrá þá átti ekki að samþykkja EES-samninginn til að byrja með. Þar er framsal til ESA og hefur svo verið í 25 ár. Það eina sem framsalið felst í hér er að framselja sértækar heimildir gagnvart ríkinu sjálfu á meðan t.d. evrópskt fjármálaeftirlit snýr að bæði stofnunum, lögaðilum og einstaklingum. Alþingi samþykkti það framsal án þess að hika og athugasemdalaust, þar á meðal núverandi þingmenn Miðflokksins sem sáu ekki einu sinni ástæðu til að taka til máls um það mál á sínum tíma. Raunar, merkilegt nokk, voru það þingmenn Samfylkingarinnar og VG sem gerðu athugasemdir þá.
Annars hef ég lengi velt því fyrir mér hvað það sé sem er svona ofboðslega hættulegt við samstarf með öðrum löndum sem snýst í grunninn ávallt um að við leggjum eitthvað fram og önnur lönd leggja fram eitthvað á móti, yfirleitt eitthvað sem við högnumst á. Fyrir smáríki eins og Ísland má segja að það að fá löggjöf á þennan hátt tilbúna í gegnum EES-samninginn sé svolítið eins og að fá far með fullbúnum bíl með vönum ökumanni sem er á sömu leið og við. Við getum rætt við ökumanninn og haft áhrif á leiðarvalið upp að vissu marki og vissulega þurfum við að leggja til bensínpening, en ef okkur líkar ekki áfangastaðurinn eða ökulagið þá getum við óskað eftir því að bíllinn sé stoppaður og við tekið stöðuna.
Áðurnefndur Skúli Magnússon kemur ágætlega einmitt inn á þennan punkt í álitsgerð sinni, með leyfi forseta:
„Því er því óheppilegt að ræða um „framsal fullveldis“ sem þó er tíðkanlegt hér á landi og getur skapað þá röngu hugmynd að fullveldi ríkisins sé með einhverjum hætti minna eða takmarkaðra eftir framsal. Raunar má snúa blaðinu við og halda því fram að það leiði beinlínis af fullveldi ríkis að það geti tekið þátt í alþjóðasamstarfi (með öðrum fullvalda ríkjum) með því að fela alþjóðastofnunum afmarkaðar heimildir á yfirrráðasvæði sínu. Af sömu ástæðum er framsal valdheimilda í eðli sínu einnig ætíð afturkræft, jafnvel þótt milliríkjasamningur geri ekki ráð fyrir uppsögn. Hvað sem líður þjóðréttarlegum skuldbindingum sem fullvalda ríki tekst á hendur á það með öðrum orðum ætíð síðasta orðið um hvaða lög gilda á yfirráðasvæði þess, hvernig þeim er framfylgt, o.s.frv.“
Frú forseti. Samkvæmt sérfræðingum á sviði Evrópulöggjafar og orkumála er ljóst að það munu ekki verða miklar breytingar sem fylgja samþykkt þriðja orkupakkans fyrir okkur Íslendinga. Telja sérfræðingar að þriðji orkupakkinn haggi í engu heimildum íslenskra stjórnvalda til að banna framsal á eignarrétti á auðlindum sem eru í opinberri eigu né rétti Íslands til að ákveða með hvaða skilyrðum orkuauðlindir landsins eru nýttar og hvaða orkugjafar eru nýttir hér á landi. Staðreyndin er að ekkert í þriðja orkupakkanum opnar á það.
Því hefur verið haldið fram að með þriðja orkupakkanum verði opnað á lagningu sæstrengs án þess að Íslendingar eða ríkið hafi neitt um það að segja. Í fyrsta lagi er það ekki rétt og er það m.a. áréttað sérstaklega í álitsgerð Friðriks Árna Friðrikssonar Hirst og Stefáns Más Stefánssonar, sem hefur verið mjög vinsælt að vitna í.
Í öðru lagi er alveg ljóst að þriðji orkupakkinn fjallar ekki um ákvarðanir um nýtingu orku né á nokkurn hátt um eignarrétt á orkuauðlindum á Íslandi heldur einungis flutning og viðskipti með orku. Þannig felur þriðji orkupakkinn ekki í sér skyldu til lagningar sæstrengs eða skyldu til að leyfa það.
Í þriðja lagi má minna á að Landsvirkjun er í 100% eigu ríkisins. Ljóst er að Landsvirkjun tekur ekki ákvörðun án aðkomu ríkisins í gegnum stjórnarmenn sína. Landsvirkjun er þess fyrir utan ekki með fjármuni til að ráðast í jafn stórt verkefni og sæstrengur er, nema með aðkomu stjórnvalda.
Í fjórða lagi hefur ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra lagt fram frumvarp þar sem verða sett belti og axlabönd og já, smekkbuxur á það og skilyrt að ekki verði hægt að leggja sæstreng án sérstaks samþykkis Alþingis.
Í fimmta lagi er skipulagsvaldið í höndum íslenskra stjórnvalda og getur enginn byggt mannvirki á Íslandi án leyfis viðkomandi sveitarfélaga.
Frú forseti. Það er ljóst að sú umræða sem er í gangi núna er lýðskrum og er því miður bara of auðveld. Hún er skiljanleg að sumu leyti út af því að okkur þykir öllum vænt um landið okkar og ekki síst auðlindirnar okkar og af því að þetta mál varðar orkuauðlindir Íslendinga er auðvelt að slá ryki í augu fólks með röngum upplýsingum. Það er sömuleiðis því miður þannig að meðan við fáum ekki nýja stjórnarskrá og tryggjum þar með eignarhald auðlinda landsins í höndum þjóðarinnar er of auðvelt að vera með hræðsluáróður um mál sem þessi. Augljóst er að við þurfum nýja stjórnarskrá og um það erum við í þingflokki Samfylkingarinnar ávallt tilbúin til að ræða, frú forseti.