ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Frú forseti. Mér þykir mjög leitt ef ég hef sært tilfinningar hv. þm. Birgis Þórarinssonar, en staðreyndin er sú að umræðan um þetta mál í samfélaginu, og því miður í málflutningi hv. þingmanna Miðflokksins, hefur verið ansi skökk. Ekki hefur verið hægt að sýna fram á neinar staðreyndir sem staðfesta þær áhyggjur sem hv. þingmenn hafa reifað í málflutningi sínum. Þvert á móti hafa hlutir verið dregnir fram í umræðunni sem eru allt að því rangir, í besta falli skakkir, sem mér þykir mjög leiðinlegt. Ég hika því ekki við að kalla umræðuna, sérstaklega eins og hún hefur verið úti í samfélaginu, lýðskrum.
Hv. þingmaður spurði hvers vegna Samfylkingin hefði setið hjá þegar fyrsti og annar orkupakkinn voru til afgreiðslu. Ég kom inn á það í upphafi ræðu minnar áðan að miklar breytingar voru gerðar á umhverfi raforkuframleiðslu og raforkukerfisins á Íslandi. Þar var sannarlega ástæða til að staldra við og velta fyrir sér hvað verið væri að samþykkja. Það var ekki gert þá. Nú er ég búin að lesa þennan pakka aftur á bak og áfram og ég sé nákvæmlega ekkert sem bendir til þess að við ættum að óttast hann eða að hann feli í sér neitt í líkingu við þær breytingar sem gerðar voru í fyrsta og öðrum orkupakkanum. Þeir eru þó ekki til umræðu hér, þeir hafa tekið gildi og hér fjöllum við um þriðja orkupakkann.