149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[16:32]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég verð að mótmæla því sem hv. þingmaður sagði að málflutningur Miðflokksmanna væri skakkur, eins og hún orðaði það. Það er alrangt hjá hv. þingmanni. Ég spyr þá bara á móti, hv. þingmaður: Er það skakkur málflutningur að hafa áhyggjur af því að innleiðing þessa orkupakka standist hugsanlega ekki stjórnarskrá? Ég verð að segja að ég veit ekki alveg hvað hv. þingmaður er að fara í þessu máli. Ég mótmæli þessu.

Við höfum rakið þetta mál málefnalega. Við höfum vitnað í álitsgerðir lögfróðra manna og sýnt fram á að mikil óvissa ríkir með þennan orkupakka og það er fullkomlega eðlilegt að málið fái vandaða og góða umræðu. Að sjálfsögðu eigum við ekki að samþykkja orkupakka sem svona mikil óvissa ríkir um og það er það sem við Miðflokksmenn höfum lagt áherslu á. Málið á bara að fara þessa lögformlegu leið. Við segjum nei hér og þetta fer fyrir sameiginlegu EES-nefndina og þar verður það rætt og við náum niðurstöðu sem vonandi yrði þá ásættanleg fyrir okkur Íslendinga.

Ég vil aðeins bæta við þetta varðandi það, sem komið hefur fram, að EES-samningurinn eins og hann er í dag er allt annað en hann var þegar við skrifuðum undir hann á sínum tíma. Og fyrrum utanríkisráðherra og formaður jafnaðarmanna, Jón Baldvin Hannibalsson, hefur sagt að í aðdraganda samningsins um Evrópska efnahagssvæðið og í samningsgerðinni sjálfri hafi aldrei verið rætt um sameiginlegan orkumarkað. Það var heldur aldrei rætt um að við þyrftum að opna landið fyrir ófrosnu kjöti. Telur hv. þingmaður þetta ekki vera mikilvægt innlegg inn í þessa umræðu, að hér eru bara allt aðrar forsendur, hér er bara allt annar samningur en lagt var upp með í upphafi? (Forseti hringir.) Það hefur fyrrum formaður ykkar, formaður jafnaðarmanna, staðfest og hann þekkir þetta mál afar vel.