ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hann kom inn á nákvæmlega það sem ég var að vísa til varðandi áhyggjurnar og ástæðurnar fyrir áhyggjunum. Nú liggja fyrir fjölmargar álitsgerðir og ég held að ekkert mál hafi fengið jafn mikla umfjöllun og mikinn undirbúning í þinginu og þetta. Við erum með álitsgerðir, t.d. frá Davíð Þór Björgvinssyni, sem telur að enginn vafi leiki á því að valdheimildir ACER séu ekki í ósamræmi við íslensku stjórnarskrána. Í álitsgerð Skúla Magnússonar lögfræðings segir að niðurstaðan sé sú að framsal valdheimilda, með innleiðingu á 7., 8. og 9. gr. reglugerðar EB/713/2019, samræmist íslenskum stjórnlögum.
Þannig mætti áfram telja. Það hentar kannski vel að vitna í eina af ótalmörgum álitsgerðum sem draga þetta örlítið í efa — raunar ekki meira en svo að með breytingunni sem var gerð með frumvarpi iðnaðarráðherra er komið til móts við skoðun þeirra — en við eigum að hlusta á lögspekingana sem er það sem hv. þingmenn eru að segja, við eigum að hlusta á alla, ekki bara tvo.
Varðandi EES-samninginn og þróunina á honum. Ef við viljum ræða EES-samninginn og upptöku á honum eigum við að ræða það. Við gerum það ekki hér í umræðu um þriðja orkupakkann.