149. löggjafarþing — 91. fundur, 9. apr. 2019.
ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
777. mál
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég tók sérstaklega eftir því að ég er nú sennilega ein af þeim sem fá stimpil fyrir að vera lýðskrumari. Mér sárnar það ekki neitt. Mér finnst það nú frekar segja meira til um þann sem það segir.
Ég tók eftir því í ræðu hv. þingmanns að hún talar um að ESA hafi ákveðið neitunarvald gagnvart því ákvörðunarvaldi sem kemur frá orkumálastofnuninni ACER. Spurning mín er einföld: Hvenær hefur ESA beitt þessu neitunarvaldi?