149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[16:39]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka aftur fyrir andsvarið frá hv. þingmanni. Ég tek undir það, ég fagna þessari umræðu. Mér finnst hún svolítið skemmtileg. Mér finnst við loksins vera farin að ræða alvörugrundvallarmál og skiptumst á skoðunum um grundvallarmál. Hins vegar er gríðarlega mikilvægt, af því að við berum ábyrgð gagnvart þjóðinni, gagnvart fólkinu, að við förum rétt með og við drögum ekki úr eða gefum í eftir því sem hentar málstað okkar.

Mig langar að vekja athygli hv. þingmanns á svari utanríkisráðherra við fyrirspurn Óla Björns Kárasonar um orkupakka ESB, eftirlitsstofnanir sambandsins og EES-samninginn, sem var dreift í gær, ef ég man rétt, frekar en í fyrradag. Hv. þingmaður afsakar vonandi að ég fari aðeins í fyrri spurninguna aftur, en þar er spurt: Hefur ESA neitað að samþykkja tilmæli eða tilskipanir eftirlitsstofnana ESB? Ef svo er, í hvaða málum og hvers vegna? Þar er sagt skýrum orðum:

„Engin tilvik hafa komið upp þar sem málsatvik eru með þeim hætti sem lýst er í spurningunni. Rétt er að árétta að Eftirlitsstofnun EFTA er sjálfstæð í störfum sínum og tekur ekki við fyrirmælum frá öðrum. ESA tekur þannig ekki við tilmælum eða fyrirmælum frá t.d. stofnunum ESB.“

Í undanþágunni er kveðið á um samtal og samstarf milli ESA og ACER áður en nokkrar ákvarðanir eru teknar. Því held ég að hvað þetta varðar sé ekkert að óttast.