149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[16:41]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. Samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið, sem ég mun hér eftir vísa til sem EES-samningsins, á aldarfjórðungsafmæli um þessar mundir. Hann var undirritaður árið 1992 og tók gildi árið 1994.

Ég skynja hér einhvern feluleik varðandi staðreyndir, eitthvað sem á sér stað nú á hinu háa Alþingi út af orkumálunum, en fyrir ekki svo löngu einkenndist umræðan fyrst og fremst af því að sagt var: Ja, við erum eiginlega nauðbeygð til þess að samþykkja þriðja orkupakkann vegna aðildar okkar að EES-samningnum. En nú vita menn betur. Og menn virðast að mestu vera hættir að reyna að réttlæta innleiðingu orkupakkans á þeim forsendum, enda eru þær kolrangar, svo ekki sé meira sagt, og standast ekki nokkra einustu skoðun.

Það er alveg á hreinu að orkuauðlindir okkar og markaður þeirra var á engan hátt, bara alls engan, felldur inn í innri markað Evrópusambandsins þegar við gerðum EES-samninginn á sínum tíma. Það gerðist í rauninni ekki fyrr en við innleiðingu annars orkupakkans að orkan var skilgreind sem vara og um leið féll hún undir hið svokallaða fjórfrelsisákvæði EES-samningsins, þ.e. frjálst flæði vöru, þjónustu, fólks og fjármuna á milli aðildarríkjanna.

Það var einmitt á þeim tíma sem orkustefna Evrópusambandsins var orðin nokkuð ljós. Sem sagt, EES-samningurinn eins og hann var gerði í engu ráð fyrir sameiginlegum innri markaði á sviði orkumála. Það er sem sagt lykilatriði í Evrópska efnahagssvæðissamningnum að öll aðildarríki hafa ótvíræðan og óvefengdan rétt til að hafna löggjöf á tilteknu málasviði. Fyrir því eru fordæmi, ekki eitt, ekki tvö, heldur mörg. Við því eru engin viðurlög. Það er samningsbundinn réttur. Það er ekki flóknara en það.

Hvað skyldi þá gerast ef ríki hafnar löggjöfinni? Það sem gerist er einfaldlega að þá afsalar ríkið sér réttindum á því málasviði sem það hefur verið að hafna, alveg eins og það tekur ekki á sig neinar skyldur varðandi þann málaflokk. Um þetta þarf að semja í sameiginlegu EES-nefndinni.

Varðandi orkumálin er málið í sinni einföldu mynd svona: Ísland er eyja úti í Atlantshafi. Við búum yfir mjög eftirsóknarverðum og verðmætum orkuauðlindum. Við höfum næga orku sem er að mestu leyti endurnýjanleg og okkur hefur tekist að halda þannig á málum að verðlag til neytenda er með því lægsta sem þekkist. Við höfum engin tengsl við sameiginlegan orkumarkað Evrópu. Það er staðreynd. Engin. Til þess að slíkt komi til þarf sæstreng.

Þá kemur stóra spurningin: Af hverju, fyrst við höfum engin tengsl við annan markað, er okkur þá svo mikilvægt að innleiða lagasetningu um sameiginlegan innri markað í orkumálum? Af hverju, úr því að hann er algerlega óþarfur og skiptir ekki einu einasta máli? Af hverju skyldi það skipta EES-samkomulag okkar máli ef markmiðið er ekki að leggja sæstreng? Er þetta það nauðsynlegasta sem Alþingi á að fást við núna; að innleiða einhver lög sem við fáum í pósti, sem ekki varða Ísland, sem Ísland hefur engin tengsl við, sem eru alger óþarfi ef trúa má stuðningsmönnum þriðja orkupakkans? Þá breytir það akkúrat engu.

Það er skiljanlegt út frá sjónarmiðum Evrópubúa að þeir vilji koma á sameiginlegum orkumarkaði á milli aðildarríkjanna, enda er ríkjandi orkuskortur, hreinlega orkukreppa á sumum stöðum í Evrópu. Meginorkuframleiðsla þeirra er bruni á kolum, gasi og olíu. Á Íslandi er næg endurnýjanleg vistvæn, umhverfisvæn orka. Við verðum að hugsa um aðalatriðin. Við verðum að horfa á stóru myndina. Málið er þetta: Hvers vegna í ósköpunum ættum við að leggja á það áherslu að innleiða löggjöf sem varðar okkur ekki neitt, en hefur vissulega afleiðingar fram í tímann? Því verður ekki á móti mælt.

Það er alveg á hreinu að EES-samningurinn veitir okkur rétt til að hafna þessum orkupakka, hvort sem Alþingi vill nýta sér þann rétt eða ekki. Við eigum skýlausan rétt á að aðlaga EES-samninginn að okkur með tilliti til hagsmuna okkar, en ekki öfugt. Við búum einnig við það að sú sérstaða okkar er varðar EES-samninginn er almennt viðurkennd, að vegna smæðar okkar föllum við undir skilgreininguna að vera skilgreind sem örríki.

Virðulegi forseti. Nú ætla ég að venda kvæði mínu í kross og líta aftur í tímann. Ég ætla að koma hér í þingsal 22. mars árið 2017, þar sem hæstv. fjármálaráðherra, núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, svarar óundirbúinni fyrirspurn hv. þm. Þorsteins Víglundssonar. Og það verður eiginlega að teljast alveg með ólíkindum miðað við þá stöðu sem upp er komin í dag, miðað við þá ályktun sem landsfundur Sjálfstæðisflokksins gerði á sínum síðasta landsfundi og miðað við skoðun og stefnu þá sem hæstv. fjármálaráðherra, formaður Sjálfstæðisflokksins, lýsti skýrt hér í ræðupúlti þann 22. mars 2017. Formaður Sjálfstæðisflokksins á Alþingi segir, með leyfi forseta:

„Þegar um svona mál er að ræða á Alþingi síðasta orðið. Það er sá fyrirvari sem menn gera í Evrópusamvinnunni, að þeir hafa ekki að stjórnskipunarlögum heimild til að skuldbinda Ísland við samningaborðið úti í Brussel án aðkomu Alþingis.“

Það er nú aðalatriðið varðandi fyrirvarana. Hvers vegna ætlum við þá að samþykkja þriðja orkupakkann? Hvað er á teikniborðinu? Sæstrengurinn? Hvar er Icelink statt núna?

Með leyfi forseta, ætla ég að halda áfram að vísa í hæstv. fjármálaráðherra, formanns Sjálfstæðisflokksins, þar sem hann segir:

„Veltum því fyrir okkur hvað við höfum með það að gera á innri markaði Evrópu að vera að ræða raforkumál sem eru í eingangruðu mengi á Íslandi úti í Brussel. Hvað höfum með það að gera að vera að ræða við önnur ríki Evrópusambandsins raforkumál af eyjunni Íslandi? Er það mál sem varðar innri markaðinn með beinum hætti, þegar engin er tengingin?“

Og áfram heldur hæstv. fjármálaráðherra fyrir rúmu ári síðan, með leyfi forseta:

„Það sem ég á svo erfitt með að skilja er áhugi hv. þingmanns og sumra hér á þinginu á að komast undir boðvald samevrópskra stofnana. Hvað í ósköpunum liggur mönnum á að komast undir sameiginlega raforkustofnun Evrópu á okkar einangraða landi með okkar eigið raforkukerfi? Hvers vegna í ósköpunum hafa menn áhuga á því að komast undir boðvald þessara stofnana?“

Það er greinilegt að það er munur á okkur hér á hinu hv. Alþingi eftir því hvort við erum Evrópusinnuð eða akkúrat ekki. Hvort við viljum standa utan Evrópusambandsins eða ekki. Hvort við erum sátt við þá þróun sem orðið hefur í okkar málum, því að þegar Evrópski efnahagssamningurinn var gerður á sínum tíma var okkur talin trú um að við myndum ævinlega vera í hinu svokölluðu tveggja stoða kerfi, í kerfinu sem er ekki alveg Evrópusambandið, því að þar er svokallað þriggja stoða kerfi, þó svo að við undirgöngumst í rauninni að flestu leyti allt sem þaðan kemur.

Og, með leyfi forseta, af því að þetta er að verða búið hjá okkur ætla ég aðeins að klára þetta, vegna þess að ég ber virkilega virðingu fyrir því sem hæstv. formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra sagði hér í pontu fyrir rúmu ári síðan. Ég fæ bara ekki með nokkru móti skilið hvers vegna staðan er eins og hún er í dag. Þá segir hann:

„Eru það rök að þar sem Evrópusambandinu hefur þegar tekist að koma Íslandi undir einhverja samevrópska stofnun sé ástæða til að ganga lengra?“

Og áfram, með leyfi forseta:

„Mér finnst vera svo mikið grundvallaratriði að við skilgreinum hvað séu innrimarkaðsmál sem við viljum sinna sérstaklega undir EES-samningnum og hvað séu mál sem tengjast ekki beint innri markaðnum. Hérna erum við með kristaltært dæmi um það, raforkumál Íslands eru ekki innrimarkaðsmál.“

Það má ýmislegt segja um hvernig við nálgumst þessi mál. En það má líka ýmislegt segja um okkur ef við erum að reyna að kasta ryki í augu þjóðarinnar með því að segja að þeir sem tala því máli sem ég tala núna séu gusa einhverju ryki. Það eina sem við erum að tala um, sem við erum að berjast fyrir er að þurfa ekki að innleiða eitthvað sem fólk segir að skipti engu máli, það er einfaldlega málefnalegra að vísa í það hver við erum, hvar við erum stödd í þessum samningi sem við gerðum fyrir réttum 25 árum síðan sem leiddi okkur inn í Evrópska efnahagssvæðið og gerði okkur kleift að komast með vörurnar okkar inn á hinn opna innri markað Evrópusambandsins.