ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Frú forseti. Ég held að það myndi taka mig stóran hluta dags að reifa allar rangfærslurnar í þessari ræðu. Ég ætla því að láta (Gripið fram í.)það ógert. Mig langar samt að höfða til hv. þingmanns sem lögfræðings, vegna þess að hún hefur stúderað Evrópurétt kannski aðeins meira en ég. Það er um þetta sem er í 2. mgr. 103. gr. í EES-samningnum. Þar eru sett upp tímamörk varðandi það hvað gerist ef stjórnskipulegum fyrirvara er ekki aflétt — og hann er upp á sex mánuði.
Þannig er að þriðji orkupakkinn var samþykktur í sameiginlegu EES-nefndinni 5. maí 2017 þannig að vissulega eru sex mánuðir liðnir. Samkvæmt þessari grein, ef ég skil hana rétt, tekur ákvörðunin þá gildi til bráðabirgða þar til verður gerð athugasemd af stjórnskipulegum toga. Þá kikkar inn einhver mekanismi sem tekur sirka mánuð og einhver mekanismi sem er í 5. mgr. 102. gr. EES-samningsins um hvernig skuli leysa úr.
Mig langar til að spyrja hv. þingmann, úr því að hún er sennilega betur að sér í EES-samningnum en ég: Hvernig virkar þessi mekanismi í reynd? Úr því hún er svo sannfærð um að við getum hafnað þessu og að þetta færi þá aftur til sameiginlegu EES-nefndarinnar. Það virðist vera mögulegt, ef ég skil þetta rétt, en ég veit ekki til þess að það hafi nokkurn tímann verið gert. Getur hún útskýrt fyrir mér hvernig þetta kemur til með að virka í reynd, með hliðsjón af sérstaklega 5. mgr. 102. gr. EES-samningsins?