ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Frú forseti. Nú er það reyndar svo að járnbrautartilskipunin er ein af þeim sem stendur út af hjá okkur í EES í augnablikinu.
En ég spurði frekar einfaldrar spurningar og er náttúrlega vísa í 102. gr. EES-samningsins. Þegar málflutningur hv. þingmanna snýst að öllu leyti um það hvort við getum með einhverju móti vísað máli aftur til sameiginlegu EES-nefndarinnar er eiginlega ekki boðlegt að fólk hafi ekki kynnt sér hvernig nákvæmlega sá mekanismi virkar. Með fullri virðingu fyrir hv. þingmanni hlýtur að vera algert grundvallaratriði í þessari umræðu, ef markmið hv. þingmanns er að við höfnum þessu, að það sé einhver skilningur á því hvað nákvæmlega gerist í því tilfelli.
Það er eiginlega bara frekar fáránlegt og alveg út í hött að við séum komin á þann stað að það sé verið að ræða um að gera eitthvað sem hefur aldrei verið gert áður í sögu EES-samningsins, beinlínis boða að við einhvern veginn ökum út í skurð og vonum svo það (Forseti hringir.) besta, án þess að liggi fyrir nákvæmlega hvað gerist (Forseti hringir.) í því tilfelli.