ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Jú, það væri afskaplega ánægjulegt ef hv. þingmaður kynnti sér mekanismann sem hann er að tala um sjálfur. Það væri náttúrlega ekki svo slæmt. Ef þú dettur út í skurð, Smári, lofa ég því að ég skal veiða þig upp, ef ég er einhvers staðar nálægt.
Staðreyndin er einfaldlega þessi: Hv. þingmaður vísar í fyrirspurninni á undan í að það sé ákveðinn tímafrestur, sem sé sex mánuðir. Nú eru liðin rúm tvö ár. Æ, æ, hvað kom fyrir okkur? Hver var aftur refsingin fyrir það? Hver er þessi þrýstingur á okkur að undirgangast þennan þriðja orkupakka akkúrat núna og fyrir hvern? Er það fyrir framtíðarsæstrengina? Er það vegna þess að hér er verið að selja auðlindirnar okkar innan lands? Að hér er verið að selja orkuréttindi á bújörðum úti um allar koppagrundir? Til hvers? Til hvers eru milljarðamæringar að kaupa sig inn í orkuauðlindina okkar? Er það ekki vegna framtíðargróðasjónarmiða? Ég hefði haldið það.