ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég les upp prentað mál eftir sjálfan mig. Nú er á dagskrá hér á hinu háa Alþingi stórt grundvallarmál okkar Íslendinga sem snýr að umráðarétti okkar yfir auðlindum og náttúru landsins. Þetta mál snýst um hvort innleiða eigi hin svokallaða þriðja orkupakka. Ríkisstjórnin hefur gengið mjög hart fram um að sannfæra okkur um að upptaka þriðja orkupakkans skipti okkur ekki máli þar sem ekki hefur verið lagður sæstrengur á milli Íslands og Evrópu.
Hins vegar hefur ekki verið nefnt hvers vegna við ættum að taka þriðja orkupakkann upp, nema þá til að þóknast ESB og af því að við tókum upp orkupakka eitt og orkupakka tvö. Ef orkupakki þrjú skiptir okkur ekki máli, eigum við þá ekki bara að hafna honum?
Mig langar í þessu sambandi að rifja upp upptöku fyrsta og annars orkupakkans. Orkupakki eitt var lögleiddur hér á landi 2003 og fjallar um að raforka sé söluvara eða markaðsvara.
Orkupakki tvö varð að lögum árið 2007 og segir til um aðgreiningu á framleiðslu og dreifingu raforku. Að þessu sinni erum við að ræða þriðja orkupakkann, sem sagt er að skipti ekki máli. Endurtek ég þá: Eigum við þá ekki bara að hafna honum? Nei, er svarið. Hann skiptir ekki máli nema lagður verði sæstrengur, er sagt.
Allir þeir fyrirvarar sem við gerum við tilskipun hafa enga þýðingu. Það sýnir reynslan, t.d. eins og kjötmálið títtrædda.
Margar spurningar hafa vaknað, m.a. sem lúta að stjórnarskránni. Ein af þeim spurningum er þessi: Ef við samþykkjum orkupakka þrjú, erum við að afsala okkur valdi yfir til yfirþjóðlegrar stofnunar? Í 39. gr. raforkulaga, nr. 65/2003, segir:
„Ráðherra leggur á fjögurra ára fresti fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku.“
Núgildandi stefna stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis kemur fram í þingsályktunartillögu nr. 26/148 frá 11. júní 2018. Þingsályktanir eru viljayfirlýsingar Alþingis sem sæta sérstakri meðferð. Slíkar tillögur eru í ályktunarformi og ræddar við tvær umræður á Alþingi. Þingsályktunartillögur kunna að geyma reglur sem skylda framkvæmdarvaldið til ákveðinna athafna en nær óþekkt er að þær geymi bindandi reglur, líkt og sett lög gera.
Þótt Alþingi samþykki þingsályktanir og þær geymi iðulega bindandi fyrirmæli standa þær skör lægra en lög. Meðferð þingsályktana er einfaldari en meðferð lagafrumvarpa. Auk þess á hinn aðili löggjafarvaldsins, forseti Íslands, ekki hlut að setningu þeirra. Lögum verður ekki breytt með þingsályktun. Í dómi Hæstaréttar frá 1943, á bls. 92, hefur verið staðfest að einstaklingar geta ekki reist rétt sinn á þingsályktun þegar lög mæla fyrir um annað.
Nú kemur framkvæmdarvaldið fram og segist ætla að tryggja hagsmuni þjóðarinnar með innleiðingu raforkutilskipunar tengdri þriðja orkupakka og áskilja með sérstakri ákvörðun Alþingis hvort hér verði komið á tengingu um raforkuflutning í gegnum sæstreng. Þessu á að ná með eftirfarandi lagasetningaraðferð:
Í fyrsta lagi að samþykkja tillögu sem felur í sér breytingu á þingsályktunartillögu nr. 26/148. Með þessu á að bæta við þá þingsályktunartillögu eftirfarandi texta, með leyfi forseta:
„Ekki verður ráðist í tengingu raforkukerfis landsins við raforkukerfi annars lands í gegnum sæstreng nema að undangengnu samþykki Alþingis. Skal það samþykki liggja fyrir áður en framkvæmdir sem varða slíka tengingu geta farið á framkvæmdaáætlun kerfisáætlunarinnar. Til grundvallar slíkri ákvörðun Alþingis skal liggja heildstætt mat á umhverfis-, samfélags- og efnahagslegum áhrifum slíkrar tengingar og framkvæmda vegna hennar.“
Og í annan stað: Samþykkja á lagabreytingu á raforkulögum, nr. 65/2003, sem kemur inn í málsgrein í 9. gr. raforkulaga sem segir: „Um tengingu raforkukerfis landsins við raforkukerfi annars lands í gegnum sæstreng fer samkvæmt stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku.“
Hæstv. forseti. Hvað felst í þessari lagasetningaraðferð sem er verið að setja í raforkulög, þau hin sömu lög og mæla fyrir um þingsályktunartillögu á fjögurra ára fresti um stefnu við uppbyggingu flutningskerfis landsins? Að um þessa tilteknu stefnu stjórnvalda með þingsályktun skal sérstaklega kveðið á um hvort sæstrengur er lagður eða ekki. Með einföldun má segja að 6. mgr. 9. gr. raforkulaga endurtaki það sem 39. gr. sömu laga segir og geri það eitt að undirstrika enn frekar að ákvörðun um sæstreng á Íslandi fari eftir þingsályktun Alþingis um stefnu við uppbyggingu flutningskerfis sem sett er á fjögurra ára fresti.
Segja má að hagsmunaaðilar tillögurnar sé öll íslenska þjóðin þar sem markmið breytinganna er að undirstrika að Alþingi hafi úrslitavald varðandi ákvörðun um hvort tengja eigi íslenska raforkukerfið við raforkukerfi annarra landa. Tillagan er því lögð fram með almannahagsmuni að leiðarljósi.
Ef markmiðið er að tryggja Alþingi og löggjafarvaldi úrslitavald varðandi ákvörðun um að hvort tengja eigi íslenska raforkukerfið við raforkukerfi annarra landa er það lágmark að setja efni þingsályktunartillögunnar í lög og tryggja um leið með því að báðir aðilar löggjafarvaldsins, Alþingi og forseti Íslands, komi að þeirri ákvörðun. Sérstaklega þar sem nú á að hafa almannahagsmuni að leiðarljósi.
Það sem þó er alvarlegra er að erfitt er að sjá samkvæmt EES-samningnum að unnt sé að innleiða reglugerðartilskipun í landsrétt með fyrirvörum. Það sem íslensk stjórnvöld fyrirhuga að gera er að innleiða þriðja orkupakkann og setja í þingsályktun fyrirvara um úrslitavald Alþingis vegna sæstrengs.
Hæstv. forseti. Að öðru. Gæti það farið svo að ríkið yrði bótaskylt, kæmi í ljós að reglugerð 713/2009 bryti gegn stjórnarskrá? Er búið að gera áætlun um bótakröfur á hendur íslenska ríkinu ef þingsályktunartillaga um orkupakka þrjú er innleidd og í ljós kemur að reglugerð 713/2009 brýtur gegn stjórnarskrá?
Fram hefur komið að hér á landi fara ekki fram viðskipti yfir landamæri með raforku sem valdaframsal til ESA, samkvæmt reglugerð 713/2009, snýr aðallega að. Það breytir því þó ekki að innleiðing þriðja orkupakkans þarf að standast stjórnarskrá.
Í því sambandi verður að hafa hugfast að lagasetning sem brýtur gegn stjórnarskránni getur haft skaðlegar afleiðingar í för með sér. Skiptir þá í sjálfu sér ekki máli hvort slíkar afleiðingar koma fram við samþykki laganna eða á síðari tímapunkti. Til að mynda getur lagasetning sem brýtur gegn stjórnarskrá bakað íslenska ríkinu bótaskyldu gagnvart einstaklingum og lögaðilum vegna tjóns sem þeir verða fyrir vegna slíkrar lagasetningar. Slík bótakrafa einstaklinga eða lögaðila á hendur íslenska ríkinu verður höfð uppi þegar tjón hefur orðið.
Það getur í sjálfu sér gerst löngu eftir að viðkomandi lög eru samþykkt á Alþingi.
Hvað sem líður hugsanlegum bótakröfum af þessum toga hefur vafi um stjórnskipulegt gildi innleiðingar þriðja orkupakkans í för með sér réttaróvissu sem ekki verður við unað.
Að síðustu: Þegar alþingismaður sest í fyrsta sinn á Alþingi skrifar viðkomandi undir drengskaparheit að stjórnarskránni þar sem segir: „Ég undirritaður sem kosinn er þingmaður Íslendinga heiti því að viðlögðum drengskap mínum og heiðri að halda stjórnarskrá Íslands.“