ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður sagði að þriðji orkupakkinn skipti ekki máli. Ég get svo sem ekki talað fyrir aðra en fyrir mér skiptir hann ekki máli gagnvart fullveldisframsalinu sem hefur verið talað um. Hann skiptir ekki máli varðandi ACER ef enginn er sæstrengurinn. Að því leyti til skiptir hann ekki máli.
Hins vegar skiptir hann máli þegar kemur að neytendavernd, gagnsæi og sjálfstæðu eftirliti, auknum kröfum um aðskilnað milli framleiðslu og dreifingar, eins og ég nefndi áðan. Alveg eins og það hefur oft verið talað á Íslandi um auknar kröfur um aðskilnað milli framleiðslu og dreifingar í mjólkuriðnaði eða í sjávarútvegi, aðskilnað milli útvegs og vinnslu í landi. Hvað af þeim atriðum myndi hv. þingmaður vilja gera undanþágu gagnvart og hvað af þeim atriðum skipta ekki máli á Íslandi?