149. löggjafarþing — 91. fundur, 9. apr. 2019.
ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
777. mál
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það sem ég sagði áðan að skipti ekki máli eru í raun og veru skilaboðin sem við höfum fengið, að orkupakki þrjú skipti ekki máli að neinu leyti. Því spurði ég hvort við ættum þá að hafna honum. Ég geri ekki athugasemdir við það sem þingmaðurinn vitnaði í, ég geri ekki athugasemdir við það sem er í þriðja orkupakkanum sem ég held að sé líka fjallað um í orkupakka tvö.