149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[17:25]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er alveg rétt að um þetta er líka talað í orkupakka tvö og eitt o.s.frv. Verið er að fylla upp í ákveðin göt með auknum kröfum um aðskilnað, með auknum kröfum um gagnsæi og sjálfstætt eftirlit er meira en það hefur verið áður.

Það sem ég hef skynjað í umræðunni um að orkupakkinn skipti ekki máli að neinu leyti tengist þeirri orðræðu sem Miðflokkurinn hefur verið með. Þau atriði sem Miðflokkurinn hefur bent á að skipti máli varðandi þriðja orkupakkann eiga ekkert við samkvæmt orðanna hljóðan í orkupakkanum sjálfum. Það á ekki við að þetta sé framsal á fullveldi. Það á ekki við að þetta séu einhver skref í átt að einkavæðingu. Það er fullt af ríkisreknum orkufyrirtækjum í Evrópu. Ef þetta væri skref í átt að einkavæðingu á orkufyrirtækjum ættu ekki að vera nein ríkisvædd orkufyrirtæki í Evrópu, ekki satt? Það er það sem er átt við með „ekki að neinu leyti“. Málflutningur Miðflokksmanna um þennan orkupakka á ekki við að neinu leyti og þess vegna þarf ekki að pæla í því.