ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir. Ef þau atriði í orkupakka tvö sem þingmaðurinn ræddi eru líka í þriðja orkupakkanum sé ég ekki neina þörf á því að innleiða hann vegna þess. (BLG: Fylla í holur.) — Fylla í holur, já. Það sem við höfum rætt, af því að hann vitnaði í þingmenn Miðflokksins, í því sambandi eru innleiðingar þessara pakka undanfarin ár og svo núna, orkupakki eitt, tvö og þrjú. Við það vakna spurningar: Hvað verður þá í orkupakka fjögur? Það er það sem við erum að spyrja um og viljum fá svör við.
Ég tek ekki undir það sem ég hef heyrt hérna, að við séum með hræðsluáróður. Við viljum bara stíga varlega til jarðar. Við viljum hafa hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi. (BLG: Ég líka.) — Það efast ég ekki um, hv. þingmaður, en við erum ekki sammála í pólitík þannig að við sjáum ekki alveg sama veginn.
Ég undirstrika að þegar við höfum fengið þau svör sem við óskum eftir þá hugsum við kannski málið upp á nýtt, en þau svör hafa ekki komið enn þá. (Gripið fram í: Frábært.)