149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[17:28]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Frú forseti. Það hefur verið áhugavert að fylgjast með umræðunni hér á þingi. Ég vil, horfandi á síðasta ræðumann, sérstaklega fagna því sem kom fram undir lok ræðu hans og er kannski mesta opnunin sem ég hef heyrt af hálfu Miðflokksins hér í dag, að vilja skoða málið og hugsanlega endurskoða afstöðu sína gagnvart málinu ef gögn koma fram sem gefa ástæðu til þess að snúa aðeins af þeirri vegferð sem hefur verið svolítið umhugsunarvert að hlusta á.

Ég myndi skilja þær ræður sem hafa verið haldnar hér af hálfu þeirra sem eru algerlega á móti þessu máli ef við værum að ræða prinsippmál eins og það hvort það eigi að sækja um aðild að Evrópusambandinu, vera inni eða úti í Evrópusambandinu. Sumir hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að Ísland eigi að fara úr NATO. Eða eigum við að ræða EES-samninginn? Það er það sem ég sakna hér, að við erum ekki að ræða EES-samninginn sem slíkan af því að þetta snertir hann á endanum. Eftir að hafa hlustað á ræður andstæðinga þessa máls þá spái ég því að í næstu kosningum verði hugsanlega kapphlaup á milli Miðflokks og Flokks fólksins um nýtt kosningaloforð, að það verði þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort það eigi að fara úr Evrópska efnahagssvæðinu. Þá skulum við taka einfaldlega þá umræðu. Það sem ég saknaði hér í ræðu velflestra þeirra sem hafa rætt um fullveldið — og ég skil vel áhyggjur þeirra varðandi það, ég tek undir með þeim að það skiptir máli að huga að fullveldinu — er að það hefur ekkert styrkt okkur Íslendinga og fullveldi okkar jafn mikið og vera öflugir, einarðir og einlægir þátttakendur í alþjóðlegu samstarfi. Hvort sem það er NATO, Evrópska efnahagssvæðið, EFTA, þá hefur það frekar styrkt fullveldi þjóðarinnar en hitt.

Auðvitað dettur engum þingflokki og ég fullyrði það að engum stjórnmálaflokki dettur það í hug að fara að afsala sér yfirráðum yfir auðlindum. Hvar hefur það komið fram? Hvergi. Engum stjórnmálaflokki dettur það í hug að reyna að lauma í gegnum einhverja þingsályktunartillögu eða innleiðingu út af EES slíku stórmáli. Engum stjórnmálaflokki. Þó að okkur greini á um ýmis mál og séum ósammála um eitt og annað sem sagt er hér þá er enginn stjórnmálaflokkur, meira að segja ekki þessi ríkisstjórn, að vinna þannig.

Þess vegna saknaði ég úr þessum ræðum sem ég vildi greina áðan að við tölum ekki um það sem þetta mál snýst um. Þetta mál snýst um neytendavernd. Hér var flutt ræða af hálfu einarðs andstæðings þessarar tilskipunar. Það var talað um allt nema neytendavernd. Allt nema það að við erum að styrkja neytendavernd heima fyrir og stjórnsýsluna líka í þá veru að efla Orkustofnun, að hún fái sterkara umboð m.a. til þess að krefjast úrbóta á dreifikerfi. Í þágu hverra? Í þágu neytenda. Ég biðst velvirðingar á því ef það snertir strengi hjá einhverjum hér en lýðskrum hefur verið nefnt. Mér finnst menn ekki að ganga hreint fram að nota svona mál til að koma í gegn öðrum pólitískum tilgangi eða markmiði.

Við erum með EES-samninginn undir. Hafa menn metið þá hagsmuni? Ætla menn að nota svona mál — þetta er mikilvægt mál, en þetta er ekki stórmál — til þess að ógna þeim gríðarlegu hagsmunum sem felast í Evrópska efnahagssvæðinu og þeim samningi fyrir íslenskt samfélag, fyrir íslenska neytendur, framleiðendur, útflytjendur? Menn nota þetta mál til þess að snúa málum á haus. Mér finnst það ekki boðlegt. Þess vegna fagna ég því að það eru komnir fleiri á mælendaskrá til að mótmæla því sem þessi málflutningur hefur boðið upp á.

Ég viðurkenni það alveg að ég saknaði þess framan af hjá þessari ríkisstjórn að hún þyrði einfaldlega að hafa forystu fyrir málinu. Hún hefði sannfæringu fyrir því að þetta væri rétt skref. Ég er alveg viss um það eftir að hafa hlustað bæði á ræðu ráðherra og lesið málið og ég vil draga það fram og segja það strax að þetta mál er mjög vel undirbúið af hálfu ríkisstjórnarinnar. Það eru ekkert endilega öll mál þannig. Þetta mál er þannig úr garði gert, bæði af hálfu hæstv. utanríkisráðherra og ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Þetta mál er vel undirbúið, mjög vel upplýst. Gögnin liggja fyrir og ég hvet fólk til að lesa gögnin til að fá sem gleggsta mynd af þessu.

Ég saknaði pólitískrar forystu og ég verð líka að segja að tíminn hefur greinilega verið notaður til þess að vinna þá vinnu sem þurfti til þess að upplýsa málið en líka til þess að róa baklandið. Það hljótum við, stjórnmálamenn og leiðtogar stjórnmálaflokka að skilja. Þegar baklandið er órólegt, þegar hverfafélög hafa ályktað um að það eigi ekki að innleiða þriðja orkupakkann, þá verða stjórnmálaflokkar að hafa ákveðið svigrúm til að reyna að upplýsa mál, til þess að sýna fram á hið rétta og sanna og skynsamlega í málinu. Um leið og ég gagnrýni seinagang, að vissu leyti, hjá ríkisstjórninni þá ætla ég ekki að gagnrýna það hvernig hún leggur fram málið af því að ég skil það. Ég skil líka að þingmönnum Sjálfstæðisflokksins og ekki síður þingmönnum Framsóknar svíði svolítið þessi einarði málflutningur Miðflokksins og Flokks fólksins af því að þær raddir heyrast líka innan raða Framsóknarmanna og Sjálfstæðisflokksins.

Ríkisstjórnarflokkarnir voru einfaldlega að undirbyggja sinn málflutning og þeir hafa gert það vel. Ég og formaður Samfylkingarinnar lögðum það til fyrir ríflega mánuði við forsætisráðherra að við værum tilbúin, ef það myndi létta undir með ríkisstjórninni og þeirri tímabundnu sálarangist sem stjórnarflokkarnir voru haldnir, að styðja þetta mál og greiða fyrir því. Af hálfu Viðreisnar hefur það ekkert breyst. Innihald þessa máls snýst fyrst og fremst um neytendavernd og um að styrkja stjórnsýsluna hér heima fyrir og síðan það sem við skulum ekki vanmeta, en það er að styrkja raforkukerfið í Evrópu til að gera dreifingunni m.a. hagkvæmari. Hvaða áhrif hefur það og afleiðingar? Það er umhverfisvænna. Það hlýtur að vera stórmál fyrir okkur öll að m.a. Evrópusambandið er að verða umhverfisvænna í gegnum tilskipanir sínar. Það skiptir okkur máli. Við eigum að hafa skoðanir á því og ég vona að flestir hafi jákvæða skoðun í þá veru.

Ég vil líka draga það fram að hæstv. iðnaðarráðherra mun síðan mæla hér síðar, næst á dagskrá, fyrir frumvörpum varðandi mál sem undirstrika það sem við erum öll sammála um. Ég trúi ekki öðru en að þetta fari allt í gegnum þingið. Talandi um sæstreng, sæstrengur kemur þessu máli ekkert við Það er að fullu á forræði þingsins og á forsendum þingsins, algerlega. Við höfum tögl og hagldir í öllum þessum málum, við ráðum yfir auðlindum okkar, við ráðum því í hvaða farveg þessi mál fara. Það getur vel verið, eins og hæstv. forseti sagði í góðri ræðu fyrr í dag, að einhvern tímann í framtíðinni meti kynslóðirnar sem koma á eftir okkur hagsmunina með öðrum hætti en við gerum í dag. Við megum ekki taka þau tækifæri og þá valkosti af börnunum okkar. Þann rétt höfum við ekki.

Um leið og ég virði málflutning þeirra sem eru á móti þessari tilskipun þá verð ég líka að segja að ég skil einfaldlega ekki þessa nálgun. Ég skil ekki af hverju það er ekki hægt að koma hreint fram og segja: Þetta mál snýst um neytendavernd. Þetta mál snýst um það að styrkja stjórnsýsluna. (Forseti hringir.) Við skulum taka umræðuna um að vera innan eða utan Evrópska efnahagssvæðisins, innan eða utan ESB, á öðrum vettvangi og á öðrum forsendum (Forseti hringir.) en ekki fara bakdyramegin í málinu og telja fólki trú um eitthvað sem ekki er satt og rétt.