149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[17:38]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég fagna því að hv. þingmaður segist virða málflutning okkar Miðflokksmanna. Miðflokkurinn er á móti þessari tillögu og telur enga ástæðu til að samþykkja hana, heldur miklu frekar að vísa málinu fyrir sameiginlegu EES-nefndina og fá þar varanlegar undanþágur.

Ég þakka hv. þingmanni fyrir að hún virði okkar málflutning. Það er svolítið annað en varaformaður Viðreisnar sem farið hefur mikinn bæði í þingsal og á Facebook-síðu sinni þar sem hann hefur farið ófögrum orðum um okkur Miðflokksþingmenn og kallað okkur lýðskrumara og ýmsum öðrum nöfnum sem ég ætla ekki að nefna hér. Hv. þm. Þorsteinn Víglundsson hefur kallað eftir málefnalegri umræðu um þetta mál og við teljum okkur hafa haldið uppi málefnalegri umræðu. En á sama tíma segir hann að málflutningur Miðflokksmanna sé lýðskrum. Það er nú öll hin málefnalega umræða sem hann óskar eftir hér.

Hv. þingmaður saknar þess að ekki sé rætt nægilega mikið um EES-samninginn sjálfan. Ég vil taka undir það, og hún sagði áðan að málið snerti samninginn á endanum. Ég er alveg sammála því. Í upphafi þegar við gerðumst aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu fyrir u.þ.b. 25 árum var hvergi rætt um orkumál og hvergi rætt um t.d. landbúnaðarmál. Nú eru báðir þessir stóru málaflokkar komnir inn í samninginn. Ég vil spyrja hv. þingmann: Er þetta sami samningurinn? (Forseti hringir.) Telur hv. þingmaður að þetta sé sami samningurinn (Forseti hringir.) og við undirrituðum og innleiddum á sínum tíma?