ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Bara þannig að það sé alveg sagt skýrt hafa viðskiptin með orku verið hluti af samningnum um Evrópska efnahagssvæðið alveg frá upphafi árið 1994, þannig að það á ekkert að koma okkur á óvart. Við Íslendingar höfum blessunarlega haft það sterkt samningafólk í fararbroddi fyrir okkur við að semja að á sínum tíma var mjög kalt hagsmunamat þegar verið var að ræða landbúnaðarvörur og sjávarútveg, m.a. þegar sjávarútvegur var tekinn út fyrir.
Um leið var opnað fyrir viðskipti fyrir íslenskar sjávarafurðir sem hafa haft ómælda þýðingu fyrir okkur. Það eru gríðarlegir hagsmunir fyrir okkur að þeir vegir verði áfram gagnvegir og greiðari en jafnvel hefur verið. Það er ekkert í þessu máli sem á að koma okkur á óvart, ekki neitt. Það er miklu frekar það sem ég velti fyrir mér þegar Miðflokkurinn segir: Við eigum að fá undanþágu. — Undanþágu frá hverju? Neytendavernd? Af því að þetta snýst um neytendavernd, þetta snýst ekkert um annað. Ég vil ekki fá undanþágur frá neytendavernd. Þessar endalausu undanþágur hafa ekki gefist vel fyrir íslenska neytendur, sem gera ekkert annað en að stríða gegn hagsmunum neytenda.
Þannig að ég er ekki hlynnt því ef undanþágan snýr að því að skerða neytendavernd, ef við ætlum að ræða um sjálfan EES-samninginn og það er það sem ég hef verið að kalla eftir. Mér finnst gott ef Viðreisnarfólk, hvort sem það er í forystu eða aðrir, ýti við Miðflokknum. Það sem við erum að kalla eftir, að við göngum hreint til verks, að Miðflokkurinn komi hreint fram og segi: Já, við viljum ræða EES-samninginn og hugsanleg úrsögn úr honum. Mér þætti það hreinna og beinna en að vera að skýla sér á bak við mál sem að er mínu mati tiltölulega einfalt og lýtur fyrst og fremst að neytendavernd en ekki einhverju allt öðru, sem fólk virðist gjarnan vilja trúa hér.