ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Þingmanninum er tíðrætt um neytendavernd. Þá er kjörið að spyrja hv. þingmann: Hvað er það sem bæta þarf sérstaklega í neytendavernd á Íslandi hvað varðar raforkumál? Gæti hv. þingmaður farið yfir það? Nú er þessum málum þannig háttað í dag að það ríkir samkeppni. Einstaklingar, heimili geta keypt raforku af fleiri en einum aðila. Skipt um orkusala, ef svo má að orði komast. Er þetta nokkuð sem bæta þarf enn frekar? Hvað á hv. þingmaður við með neytendavernd í þessu sambandi?
Síðan er náttúrlega alveg ljóst að Viðreisn er fylgjandi þessu máli vegna þess að Viðreisn er Evrópuflokkur sem vill ganga í Evrópusambandið, þannig að það kemur ekkert á óvart að flokkurinn skuli standa fyrir málflutningi þess efnis að við eigum að samþykkja þennan orkupakka. Það er gott og vel. Ég virði þann málflutning vegna þess að þetta eru skoðanir og stefna þessa flokks.
Að sama skapi vænti ég þess að menn virði þá skoðun Miðflokksins að fara eigi ofan í kjölinn á þessu máli vegna þess að hugsanlega getur það stangast á við stjórnarskrá og stjórnarskráin á að njóta vafans í þessum efnum. Þannig að það er ekkert óeðlilegt við þann málflutning að við viljum fara varlega í þessum efnum. Og með því að segja nei gerist ekkert annað en að málið fer fyrir sameiginlegu EES-nefndin. Þar setjumst við niður, förum yfir málið og sýnum fram á okkar sjónarmið. Í framhaldinu fáum við vonandi varanlega undanþágu. Spjall utanríkisráðherra Íslands við orkumálastjóra Evrópusambandsins um að við höfum ákveðna sérstöðu sem er viðurkennd, hefur ekkert gildi að þjóðarétti. Þannig liggur í þessu máli.