ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. EES-samningurinn hefur fært íslenskum neytendum alveg ómælda kosti og miklar framfarir. Líka fólki á vinnustöðum með auknu vinnuöryggi. Neytendaverndin í þessu tiltekna máli snýr að því að auka samkeppnishæfni á raforkumarkaði enn frekar og vinna þannig að raforkuverð til neytenda lækki en líka í þá veru að neytendur geti farið að velja um af hverjum þeir kaupa raforkuna. Það felur í sér aukið aðhald … (Gripið fram í.)— Já, og aukið aðhald neytenda. Líka í því samhengi verið er að auka valdheimildir Orkustofnunar til að krefjast úrbóta í dreifikerfinu, sem er auðvitað ekkert annað en í þágu neytenda.
Það er alveg hárrétt sem hv. þingmaður sagði: Viðreisn er Evrópuflokkur. Af hverju erum við Evrópuflokkur? Af hverju viljum við halda í svo dýrmætt samstarf eins og EES-samstarfið? Af því að það hefur haft í för með sér ótrúlegar úrbætur og hagsmuni fyrir íslenskt samfélag. Ég vil meina að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið sé eitt það mikilvægasta skref sem við Íslendingar höfum tekið, það er alla vega einhver viðleitni til efnahagslegra framfara og fyrirheit um stöðugleika, sem mun reyndar ekki breytast fyrr en við fáum annan gjaldmiðil.
Þetta allt tryggir undirstöður okkar Íslendinga. Við erum óhrædd við að segja það. Við erum reiðubúin til að taka þá umræðu við Miðflokkinn, sem er einarður andstæðingur Evrópusambandsins. Gott og vel. Ég óttast það að núna á næstu misserum og árum munum við í ríkari mæli heyra raddir og kröfur af hálfu Miðflokks og hugsanlega Flokks fólksins, mér heyrðist á formanni flokksins áðan, um að Íslendingar gangi úr samstarfinu um Evrópska efnahagssvæðið. Ég vara við því og ég er óhrædd við að segja að ég mótmæli því og slíkum málflutningi. Ég vil fá að heyra það hreint út, ekki tengslum við aukamál sem tengist neytendavernd á raforkumarkaði. Ég vil að við tökum umræðu á breiðari grunni en akkúrat í tengslum við þetta mál.