149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[17:48]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Þetta hefur verið býsna fróðleg umræða. Hæstv. ráðherra kynnti málið prýðilega í gær og hv. þm. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir fór ágætlega yfir afstöðu þingflokks Samfylkingarinnar í málinu áðan. Ég ætla því að fjalla um aðrar víddir málsins, sem eru samt ekki síður mikilvægar.

Það er eðlilegt að stjórnmálaflokkar sem byggja starfsemi sína á mismunandi hugmyndafræði takist á. Flokkar eru gjarnan skilgreindir eða skilgreina sig sjálfir á tilteknu litrófi og það er algengast að fjallað sé um vinstri og hægri. Þetta er hins vegar mikil einföldun því að stjórnmálin eiga sér ótal víddir, ekki síst íhaldssemi og frjálslyndi og nú í seinni tíð eru áberandi átök milli einangrunarsinna og þeirra sem telja að mikið og blómlegt fjölþjóðlegt samstarf sé samfélögum okkar til góða.

Mannkynið stendur frammi fyrir gríðarlega flóknum viðfangsefnum sem má fullyrða að verði afgerandi fyrir okkur og reyndar allt lífríki á jörðinni í framtíðinni. Fátækt, ójöfnuður og ófriður eru allt viðfangsefni sem við höfum verið að glíma við lengi og mörg okkar trúa að aukið samstarf milli þjóða sé líklegast til að við þetta verði ráðið. En nú síðast stöndum við frammi fyrir loftslagsógn sem má rekja til ofbeitar okkar á náttúrunni. Sóðaleg umgengni og gríðarleg neysluhyggja hefur komið okkur í býsna mikinn vanda. Og eins víst og ég tel að það verði flókið að vinna bug á þremur fyrstu áskorununum held ég að það sé óvinnandi vegur að gera það með þá síðustu öðruvísi en í nánu samstarfi við aðrar þjóðir.

En það er því miður þekkt að alið sé á ótta við erlend áhrif sem eru samfara erlendu fólki sem hingað vill flytjast t.d. og öðru samstarfi, ýkja hættu sem okkur kann að stafa af erlendum matvælum og oflofa jafnvel það sem innlent er. Þetta sjáum við í auknum mæli í íslenskri stjórnmálaumræðu. Og síðasta málið af þessum toga heitir þriðji orkupakkinn.

Það er auðvitað, herra forseti, vandséð að átta sig á öðrum tilgangi þesslags hræðsluáróðurs, sem m.a. Miðflokkurinn stendur fyrir þessa dagana, en að verið sé að grafa undan samstarfi við erlend ríki, m.a. EES-samningnum, með því að teikna upp andlitslausa ófreskju í líki Evrópusambandsins sem ætli sér að gína yfir öllu hér og ná völdum.

En eitt stærsta heillaskref sem þessi þjóð hefur stigið er auðvitað aðild að EES-samningnum. Með honum breyttist Ísland úr 300.000 manna markaði í 500 milljóna manna markað. Hann hefur búið til vöxt, störf; ver réttindi og hagsmuni og öryggi okkar; verndar umhverfið og fjárfestir í framtíðinni. Með samningnum öðluðumst við Íslendingar frelsi til að ferðast, búa, læra og vinna hvar sem er í Evrópu. Líf okkar allra var auðgað með þessum samningi, sjóndeildarhringurinn stækkaði og samfélagsgerðin styrktist. Þessi frjálsa för fólks hefur líka leitt til mikils sveigjanleika á vinnumarkaðnum og tölur sýna svart á hvítu að erlent launafólk, sem hingað hefur komið í uppgangi eftirhrunsáranna, á mikinn þátt í þeim hagvexti sem hér ríkir.

Ég hef því miður þess vegna ekkert umburðarlyndi fyrir þeirri taktík sem mér virðist Miðflokkurinn beita í þessu máli. Ég hef það reyndar heldur ekki fyrir málflutningi hæstv. utanríkisráðherra þegar hann gefur í skyn að vegið sé að EES-samningnum úr tveimur áttum, annars vegar rífi þjóðernispopúlistar Evrópusambandið í sig en hins vegar séu það Evrópusinnar sem tali samninginn stöðugt niður. Ég vil því hafa það algjörlega á kristaltæru að ég og aðrir sem eru hlynntir því að við náum góðum samningi og verðum fullir aðilar að Evrópusambandinu — sem getur fært þjóðinni lífsgæði og ekki síst upptöku á stöðugri og betri gjaldmiðli — erum með ötulustu stuðningsmönnum EES-samningsins hér á þingi.

Herra forseti. Við erum hér að ræða þriðja orkupakkann og ég held að það sé þess vegna ágætt að ræða aðeins um hvað þessi sameiginlegi raforkumarkaður ESB snýst um, annars vegar að koma á virkri samkeppni, gagnsæi og neytendavernd og þannig hefur skoðun á þróun íslenska raforkumarkaðarins leitt í ljós að þær breytingar sem gerðar hafa verið, eftir að við innleiddum fyrsta og annan orkupakkann, hafa skilað neytendum betra umhverfi þvert á það sem hér hefur verið sagt. En það sem er kannski einna mikilvægast og merkilegast við þetta orkusamstarf er loftslagsmálin, umhverfismálin. Þriðji orkupakkinn snýst nefnilega líka um að auka raforkuöryggi, minnka sveiflur og hygla og ýta undir framleiðslu á grænni orku, sem er nauðsynlegt til að takast á við þær gríðarlegu ógnir sem hanga yfir okkur vegna umgengni okkar og alls mannkyns við náttúruna.

Í ótrúlega óvönduðum áróðri, sem haldið hefur á lofti, er því haldið fram að með innleiðingu orkupakkans missum við yfirráð yfir náttúruauðlindum okkar, raforkuverð muni rjúka upp til heimila og heilu atvinnugreinarnar leggist jafnvel í rúst. Allt þetta er þvæla, herra forseti. Þetta eru falskar fréttir. Þau frumvörp sem ráðherrar hafa boðað að fylgi innleiðingunni tryggja ótvírætt að svo verður ekki. Grundvallaratriðið er nefnilega þetta: Íslenska þjóðin mun eftir sem áður hafa fullt forræði yfir þeim orkuauðlindum sem hún heldur þegar á. Hér verður ekki lagður sæstrengur nema Alþingi heimili það, ákveði með hvaða hætti það yrði gert og telji að það sé hagkvæmt til framtíðar. Slíkur strengur er reyndar afskaplega dýr. Ég held að kostnaðurinn hljóði upp á u.þ.b. heildarfjárlög ríkisins á hverju ári, einu ári, og þar fyrir utan er margt sem bendir til þess að sá strengur myndi skríða á land utan Evrópusambandsins nú þegar Bretar eru á leiðinni út úr því.

Herra forseti. Það er mikilvægt að við getum rætt ákveðin grundvallaratriði tengd þessari umræðu. Til dæmis tel ég ljóst að það sé ákaflega nauðsynlegt að við setjum okkur auðlindaákvæði í stjórnarskrá. Í umræðu dagsins mætti reyndar stundum halda að það væri hafið yfir vafa að við ættum auðlindir okkar. Við þekkjum þetta úr umræðunni um fiskveiðiauðlind þar sem ekki má hrófla við kvótanum af því að myndast hafi eignarréttur. Þess vegna er mjög mikilvægt að við setjum ákvæði um slíkar auðlindir í stjórnarskrá.

En hvaða stjórnmálamenn skyldu það vera sem hafa þvælst mest fyrir því máli? Það skyldi þó ekki vera að formaður Miðflokksins hafi komið þar við sögu og stoppað þá vinnu sem var komin á skrið við að setja nákvæmlega slíkt ákvæði? Mig minnir það.

Í annan stað skiptir það líka máli hverjir skuli eiga stærstu raforkufyrirtæki landsins, t.d. Landsvirkjun. Stefna Samfylkingarinnar í því er afar skýr. Við teljum að þessi fyrirtæki eigi að vera í opinberri eigu. Það er allt í lagi að minnast á að það var fyrrverandi iðnaðarráðherra Samfylkingarinnar, Össur Skarphéðinsson, sem hafði forgöngu um að setja lög sem bönnuðu að orkuauðlindir eða eignarhlutir í orkufyrirtækjum yrðu seldir úr eigu ríkis og sveitarfélaga og þessi lög eru enn í gildi.

Herra forseti. Fjöldinn allur af stjórnskipunarfræðingum hefur lagst yfir málið og komist að því að málið hafi verið í lagi í upphafi og þeir sem skeptískastir voru telja að í þeim búningi sem það birtist nú sé algerlega klárt að af því stafi engin hætta fyrir íslenska þjóð þegar kemur að eign eða umráð yfir auðlind okkar.

Það er augljóst, í dag og í gær þegar maður hlustar á ræðurnar, að tækifærissinnaðir stjórnmálamenn eru að reyna að færa víglínuna frá inngöngu í Evrópusambandið í það að ætla að yfirgefa EES-samninginn. Þessi stanslausi hræðsluáróður og falsfréttir gegn hvers konar alþjóðasamstarfi og framþróun er eingöngu til þess fallinn að skapa glundroða sem nýtist fámennri klíku sem vill stórauka völd síns. Og þá eru þeir að ásælast völd til sín sem mun bitna á lífsgæðum almennings í landinu.