149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:03]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Ég held að þetta sé sjálfsögð og eðlileg spurning til að fá fram hvort Samfylkingin hafi í hyggju að setja einhverja fyrirvara við þetta mál. Maður skyldi ætla að þeir ættu eitthvað sameiginlegt með systurflokki sínum í Noregi og þar tala menn af reynslu. Eins og kom fram í máli mínu áðan og hefur komið fram í Noregi hafa menn áhyggjur af því að þetta geti hækkað raforkuverð enn frekar. Verkalýðshreyfingin hefur áhyggjur af því. Lagning sæstrengs í Noregi gerði það að verkum að orkuverð hækkaði. Innleiðing orkupakka eitt og tvö á Íslandi gerði það að verkum að orkuverð hækkaði. Það er staðreynd. Þess vegna er fullkomlega eðlilegt að menn spyrji að þessu og hv. þingmaður þarf ekkert vera að æsa sig yfir því.

Ég kannaði sérstaklega atkvæðagreiðslu Samfylkingarinnar við orkupakka eitt og ég get ekki séð betur en að þar hafi öll Samfylkingin setið hjá. Einhverjar fjarvistir voru síðan við orkupakka tvö, það er rétt hjá hv. þingmanni. Það er því einnig eðlilegt að spyrja að því.

Hefur hv. þingmaður t.d. ekki áhyggjur af því hvernig EES-samningurinn er að þróast? Við horfum upp á að stór og veigamikil mál eru komin inn í þennan samning sem enginn hafði hugmynd um að myndi gerast fyrir 25 árum þegar hann var innleiddur. Ég hef nefnt orkumálin og sérstaklega landbúnaðarmálin. Er það þannig að við eigum að samþykkja allt sem kemur inn í þennan samning, öll stór mál sem koma þar inn, vegna þess að við erum aðilar að honum, þó að það hafi verið fyrirséð að það yrði aldrei þannig að þau mál yrðu þarna inni? Það væri fróðlegt að fá svar hv. þingmanns við því.

Síðan óska ég þess að hv. þingmaður hlusti á ræður okkar með (Forseti hringir.) enn meiri jákvæðni í huga gagnvart skoðunum okkar, þótt hann sé ekki sammála þeim.