ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Það stendur sem ég sagði í síðasta andsvari, að Samfylkingin sat heilt yfir ekki hjá í þessu máli. Það skiptir hins vegar engu máli.
Hvað varðar fyrirvarana sem hv. þingmaður spyr út í, og vísar væntanlega í átta liða fyrirvara sem voru gerðir í Noregi, er því til að svara að það hafa nefnilega verið settir býsna stífir og góðir fyrirvarar í málinu. Það er allt í lagi að hrósa ráðherrum ríkisstjórnarinnar fyrir að hafa hlustað og tekið mið af þeim aðilum sem voru hvað skeptískastir. Þeir fyrirvarar liggja fyrir.
Hvað varðar þróun EES-samningsins hefði ég miklu meiri áhyggjur af því ef EES-samningurinn væri ekki að þróast. Við lifum í veröld sem er á gríðarlega mikilli ferð og þróast býsna hratt og með tilkomu hinnar stafrænu tækni eru breytingarnar í veldisvexti, sem er óskiljanlegt hugtak fyrir okkur flest dauðleg. Þess vegna hlýtur stór viðskiptasamningur, 500–600 milljóna manna, að taka breytingum frá einum tíma til annars. En það þýðir ekki að við eigum ekki að vera á varðbergi
Ég er í sjálfu sér ekki hissa á því þó að fólk óttist hitt og þetta. En í þessu máli er búið að girða fyrir eignarrétt okkar og notkunarrétt. Ég held að það sé það sem skiptir máli. Ein hugmynd okkar á bak við það að reyna að ná góðum samningi við Evrópusambandið og ganga þar inn er einmitt að hafa betri færi á því að taka ákvarðanir, frekar en að vera í þeirri stöðu sem við erum í núna. En í henni er þrátt fyrir allt mikið betra að við verjum þennan EES-samning en rífum hann ekki í tætlur. Ég óska eftir því að hv. þingmaður komi (Forseti hringir.) sér bara beint að orðunum og taki umræðu um hann í staðinn fyrir að nota þetta litla mál til að drepa málum á dreif.