ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna sem hann flutti hér áðan. Hún hafði ákveðið skemmtigildi í bland. Hún fjallaði í sjálfu sér kannski ekki mikið um það sem við ræðum hér núna, hún fjallaði mikið um flokkinn minn og ég er ánægður með að hv. þingmaður vill auglýsa hann. En ræðan hans fjallaði líka um að einhver vildi yfirgefa EES-svæðið og segja upp EES-samningnum og það er reyndar bara einn ræðumaður í dag sem ég man eftir að hafa orðað það, það var hæstv. forseti, sem nú situr, sem minntist á það hér áðan að hann væri til í að segja upp EES-samningnum ef út í það væri farið. Ég man ekki eftir öðrum í svipinn.
En af því að hv. þingmaður talaði í ræðu sinni svo dæmalaust kurteislega um þvælu og lýðskrumara þá dettur mér í hug hvort hann hafi lesið það sem segir í niðurstöðum álitsgerðar Friðriks Árna Friðrikssonar Hirst og Stefáns Más Stefánssonar prófessors, á bls. 42. Vitnað er til þess í frumvarpinu og þar segir, með leyfi forseta:
„Í álitsgerðinni kemur fram að verði 8. gr. reglugerðar (EB) nr. 713/2009 tekin upp í EES-samninginn og innleidd í íslenskan rétt í óbreyttri mynd muni reglugerðarákvæðið fela í sér framsal framkvæmdarvalds til ESA sem ella væri á hendi íslenskra stjórnvalda.“
Og ögn síðar segir, með leyfi forseta:
„… en ekki séu fordæmi fyrir slíku valdframsali til alþjóðlegra stofnana á grundvelli EES-samningsins.“
Í ljósi eðlis og inntaks valdframsals til ESA, sem felst í 8. gr. reglugerðar, nr. 713/2009, telja höfundar vafa undirorpið hvort valdframsalið gangi lengra en rúmist innan ákvæða stjórnarskrárinnar miðað við núverandi aðstæður og forsendur EES-samningsins.
Nú spyr ég hv. þingmann: Hvað af þessu sem ég áður las er þvæla? Og eru þessir tveir fræðimenn, sem við höfum vitnað mikið til í okkar málflutningi í dag, bara ótíndir lýðskrumarar?