149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:14]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Það er einmitt vandamálið með málflutning Miðflokksmanna í gær og dag (ÞorS: Málefnin.) að þeir hafa tekið setningar samhengislaust úr álitsgerð tveggja afskaplega vandaðra fræðimanna sem höfðu mestar áhyggjur af þeim sex sem liggja fyrir sem fylgiskjöl; fjórar af þeim voru ótvíræðar, engar áhyggjur af þessu, en þessar tvær gáfu tilefni til að ríkisstjórnin settist niður, lagði fram fjögur frumvörp og þeir hafa gefið álit sitt á því, a.m.k. Stefán Már Stefánsson, að það sé engum vandkvæðum bundið að samþykkja málið að þessu gefnu.

Hvað varðar yfirþjóðlegu stofnanirnar er það vissulega rétt að hægt er að skjóta deiluatriðum til slíkra stofnana. Það er iðulega gert þegar deilur eru uppi. Í þessu tilfelli byggjum við á tveggja stoða lausn þar sem er annaðhvort ACER en við skjótum því til ESA. Þessir tveir aðilar hafa svo sex mánuði til að komast að samkomulagi. Það hefur ekki reynt á þetta. Ég veit ekki hvaða ofboðslegu áhyggjur hv. þingmaður hefur af því að eiga samskipti við annað fólk. Ég held að það sé alveg eins víst og við stöndum og sitjum hér að án þess mun okkur ekki farnast vel, hv. þingmaður.