149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:16]
Horfa

Óli Björn Kárason (S):

Herra forseti. Það þingmál sem við ræðum hér, að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara á þriðja orkutilskipuninni, vekur greinilega djúpstæðar tilfinningar í hjörtum þingmanna og líka meðal almennings. Ég er í hópi þeirra sem höfðu töluverðar efasemdir um að rétt væri að fara þá leið að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara að óbreyttu. Það voru mörg atriði sem ég hafði áhyggjur af sem ég kem að síðar í ræðu minni.

Ég hygg að óhætt sé að fullyrða almennt þegar kemur að alþjóðlegum samskiptum að yfirgnæfandi meiri hluti landsmanna er því fylgjandi að við byggjum hér upp opið og frjálst samfélag og treystum böndin við aðrar þjóðir. Það höfum við gert með því að skipa okkur í raðir Vesturlanda undir merkjum Atlantshafsbandalagsins, við höfum gert það með því að gerast aðilar að Sameinuðu þjóðunum 1946. Við stigum skref þegar við gengum inn í GATT, við fengum aðild að GATT-samkomulaginu 1964 og sex árum síðar að EFTA. Síðan fyrir 25 árum tókum við þátt í stofnun Evrópska efnahagssvæðisins með því að skrifa undir EES-samninginn.

Sá samningur með öllum sínum kostum og öllum sínum göllum, vegna þess að hann er ekki gallalaust frekar en aðrir samningar sem við gerum við aðrar þjóðir, hefur hins vegar tryggt Íslandi öruggan og nauðsynlegan aðgang að mikilvægum erlendum mörkuðum og gefið Íslendingum tækifæri í löndum Evrópu sem þeir hefðu annars ekki fengið. Við höfum í EES-samstarfinu þurft að sætta okkur við ýmsa ókosti og spurningin er bara: Hafa kostirnir vegið ókostina upp? Í mínum huga er svarið augljóst. Já, við höfum hagnast meira á samvinnunni innan Evrópska efnahagssvæðisins á móti þeim ókostum sem fylgt hafa.

Hitt er svo annað mál, og þar eigum við að líta í eigin barm, við sem sitjum á þingi; við þurfum að horfast í augu við þá staðreynd að við verðum að standa betur að verki við afgreiðslu EES-mála, þingsályktunartillagna og lagafrumvarpa. Við höfum því miður látið undan síga en það hefur orðið stórkostleg breyting á undir forystu hæstv. utanríkisráðherra Guðlaugs Þórs Þórðarsonar á undanförnum tveimur til þremur árum. Við erum aftur farin að gæta hagsmuna okkar eins og við áttum að gera og höfum alltaf átt að gera og verðum að gera. Frumskylda stjórnvalda og frumskylda okkar í þessum sal er á hverjum tíma að gæta að samkeppnishæfni þjóðarinnar, tryggja að íslensk fyrirtæki og launafólk verði ekki undir í harðri alþjóðlegri samkeppni.

Það er þess vegna sem ég hamra á því aftur og aftur úr þessum ræðustól og öðrum ræðustólum og í greinaskrifum hversu mikilvægt er að allt regluverk samfélagsins sé vel ígrundað, einfalt og gegnsætt og að þar sé hugað að samkeppnishæfni landsins. Allt skipulag frá heilbrigðiskerfinu til raforkukerfisins, frá landbúnaði til sjávarútvegs, frá skipulagi peningamála til menntakerfisins á að taka mið af því að við getum staðist þeim öðrum þjóðum snúning sem best standa. Ísland er eyland, langt frá öðrum mörkuðum, og flutningskostnaður og annað óhagræði sem fylgir fjarlægðinni frá erlendum mörkuðum gerir það að verkum að samkeppnishæfni þjóðarinnar er lakari en ella. Það á í rauninni jafnt við um útflutning sem innflutning.

Það er líka margt sem spilar með okkur. Náttúran er okkur gjöful, þó að hún geti stundum verið harðneskjuleg. Við höfum forskot á ýmsum sviðum, aðgangur að hreinni og hlutfallslega ódýrri orku eykur samkeppnishæfni atvinnulífsins og styrkir ímynd landsins sem perlu náttúru og hreinleika. Það er alveg ljóst, og um það hljótum við að vera öll sammála, að ein dýrmætasta eign, auðlind okkar Íslendinga er hrein orka. Það er ein af okkar dýrmætustu auðlindum. Þannig að skipulag raforkumála, skipulag orkumála er auðvitað spurningin um samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og þar með spurningin um lífskjör almennings. Þess vegna getum við aldrei gengið þannig fram að við afsölum okkur fullum yfirráðum yfir auðlindunum, orkuauðlindunum, fallvötnunum og jarðvarma.

Það eru þessir þættir sem vega þyngst í mínum huga þegar kemur að þeirri spurningu hvort rétt sé að afnema stjórnskipulegan fyrirvara við þriðju orkutilskipun Evrópusambandsins.

Það voru þessar spurningar, hvort við værum með einhverjum hætti að afsala okkur fullveldi, eignaryfirráðum og nýtingaryfirráðum yfir okkar orkuauðlindum, sem ég þurfti að svara áður en ég tók afstöðu til þeirrar þingsályktunartillögu sem hér liggur fyrir. Ég þurfti líka að svara því: Eru líkur á því að við innleiðingu þriðju orkutilskipunarinnar séum við að ganga fram með þeim hætti að það skerði samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs eða lífskjör almennings með beinum hætti svo sem með því að hækka raforkuverð?

Eftir að hafa gengið síðasta árið í gegnum allar þessar pælingar var ég ekki enn sannfærður. Eftir þann tíma var ég enn með pínulítil ónot í maganum þó að ég kæmist að því að í 125. gr. EES-samningsins standi skýrum stöfum að eignarrétturinn og skipulag eignarréttarins í hverju EES-landi fyrir sig sé ákvörðun viðkomandi lands. Eignarrétturinn verður ekki rifinn frá nýtingarréttinum eða það hvernig menn ráðstafa nýtingu lands og annarra náttúruauðlinda, þannig að það er tryggt.

Ég komst líka að því, a.m.k. að óbreyttu væru engar líkur á því að orkuverð til íslenskra fyrirtækja eða íslenskra heimila myndi hækka vegna þess að við værum að innleiða þriðju orkutilskipunina. Það var samt ekki nóg fyrir mig. Það var ekki fyrr en ég sá að það var auðvitað skynsamleg niðurstaða hjá hæstv. utanríkisráðherra og hæstv. iðnaðarráðherra að leggja það til við Alþingi, til að taka af allan vafa, að sæstrengur milli Íslands og annarra landa yrði aldrei lagður án þess að til kæmi stuðningur og samþykki meiri hluta Alþingis, aldrei.

Það er forsenda fyrir því að menn hugi að lagningu sæstrengs og þá var ég farinn að vera sæmilega rólegur þegar kom að því atriði. Það er auðvitað líka spurningin um það hvernig við ætlum í framtíðinni, ekki bara í þessu máli heldur bara framtíðinni yfirleitt, að haga okkur og koma fram við þjóðir sem við höfum sóst eftir að eiga samstarf við á sviði viðskipta, menningar, lista, vísinda o.s.frv. (Forseti hringir.)

Virðulegi forseti. Þú gefur mér ekki mikinn tíma.

(Forseti (BN): Það er ekki meira í boði.) (Forseti hringir.)

Hún er u.þ.b. hálfnuð ræðan. Ég þakka þér fyrir.