ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Óla Birni Kárasyni fyrir mjög athyglisverða ræðu. Ég er með nokkrar spurningar til þingmannsins. Það er þekkt úr þjóðmálaumræðu að hann er meðal þeirra hv. þingmanna Sjálfstæðisflokksins sem hafa haft miklar efasemdir um þetta mál um alllangt skeið. Ég þekki hv. þingmann að því að vilja vanda vel til verka og starfa með faglegum hætti. Það kom mér þess vegna svolítið á óvart að hann skyldi nálgast málið með þeim hætti sem hann gerði, ef ég skildi hv. þingmann rétt, að hér væri verið að tryggja okkur einhvers konar samkeppnishagsmuni fyrir íslensk atvinnufyrirtæki. Ég verð að viðurkenna að ég átta mig ekki alveg á þeim málflutningi.
Ég vil þess vegna spyrja hv. þingmann hvort honum sé kunnugt um einhverjar hagfræðilegar greinargerðir sem myndu styðja það að það væri af því ávinningur í samkeppnislegu tilliti fyrir íslenskan atvinnurekstur að gangast undir þriðja orkupakkann.
Mér er ekki kunnugt um, herra forseti, að meðal gagna málsins sé slík hagfræðileg greinargerð. Reyndar er það svo að í munni hæstv. utanríkisráðherra virðist hugtakið gögn málsins vera teygjanlegt. Hann hélt því t.d. fram í gær, ranglega að vísu, að tiltekin frétt á vefsíðu Stjórnarráðsins væri meðal gagna málsins, sem hún auðvitað er ekki. Í þessari fyrri umferð þá hef ég áhuga á að heyra viðhorf hv. þingmanns til þessara samkeppnisspurninga.