ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég hef kannski ekki talað nægilega skýrt. Þegar ég er að vísa til samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og í rauninni íslenskra heimila líka þá er ég að tala um það að við njótum þess og um það er vonandi ekki deilt að raforkuverð, orkuverð á Íslandi, er töluvert lægra en nær alls staðar í Evrópu. Það var eitt af því sem ég hafði áhyggjur af að myndi breytast. Lágt orkuverð er auðvitað hluti af okkar samkeppnisforskoti. Það er þess vegna sem ég lagði áherslu á það.
Ég er ekki að tala um þriðju orkutilskipunina í þeim skilningi að hún byggi undir ákveðin fyrirtæki með þeim hætti sem hv. þingmaður var að hugsa um, eins og ég skildi hann. Þó má vitna til þess að fjöldi íslenskra fyrirtækja, ekki síst nýsköpunarfyrirtæki, byggir töluvert mikið á því að til sé samræmd orkutilskipun í Evrópu og það auðveldar þeim allt starf. Það eru fyrirtæki sem t.d. byggja upp nýjungar eða nýjar leiðir varðandi orku. Það eru fyrirtæki sem byggja hátækni sína á rafeindatækjum, Marel, Skaginn 3X, Frost o.s.frv. Það skiptir máli fyrir þessi fyrirtæki eins og íslenskan sjávarútveg að það sé einhver heildstæð löggjöf til þannig að leikreglurnar séu allar þær sömu í viðskiptalöndum okkar og menn geti lifað og hrærst í sama viðskiptaumhverfi en ekki mörgum viðskiptaumhverfum eftir því hvar þeir eru.