ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Þetta er bara mjög sanngjörn og eðlileg spurning. Þetta er ein af þeim spurningum sem þingið, við öll, þurfum að leita svara við, sérstaklega þeir sem eru ekki alveg sannfærðir eins og hv. þm. Ólafur Ísleifsson. Það er fullkomlega eðlilegt að nefndir þingsins, utanríkismálanefnd, atvinnuveganefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og aðrar þær þingnefndir sem kunna að vilja skoða málið, kalli alla helstu sérfræðinga, stjórnskipunarfræðinga, á sinn fund og spyrji þessarar spurningar. Það er fullkomlega eðlilegt.
Ég vil hins vegar, það er ekki hluti af gögnum málsins, fá að vitna í Morgunblaðið og Stefán Má Stefánsson þar sem hann segir í dag orðrétt, með leyfi forseta:
„Við innleiðum tilskipunina en frestum gildistökunni. Alþingi lofar sjálfu sér því að ef grunnvirki [sæstrengur] verða áformuð þá fari þetta í ferli og þar með í stjórnarskrárferli.“
Þegar Stefán Már Stefánsson er spurður hvort þetta standist ákvæði í stjórnarskrá þá svarar hann, með leyfi hæstv. forseta, (Forseti hringir.) og gefðu mér augnablik:
„Við teljum það af því að þetta er innleitt en lögin koma ekki til framkvæmdar fyrr en ef tekin verður ákvörðun um að leggja sæstreng.“
Þetta liggur (Forseti hringir.) fyrir en ekki sem hluti af skjölum málsins.