149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:34]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Óla Birni Kárasyni kærlega fyrir þá ræðu sem hann flutti. Hún var tilfinningarík og hún var honum lík, hlýleg og flutt af visku. Ég hélt reyndar fyrst, af því að hann eyddi svo löngum tíma í byrjun í að telja upp allar þessar stofnanir sem við værum hluti af, að hann væri annaðhvort að tala til hæstv. forseta, sem er eini ræðumaður dagsins sem hefur lýst vilja sínum til að segja sig úr EES, eða þá til Vinstri grænna, félaga sinna, sem hafa lagt til að Ísland fari úr NATO. Ég hélt að þetta væri einhvers konar peppræða til beggja þessara aðila, þ.e. til hæstv. forseta og VG-liða.

Ég deili áhyggjum þingmannsins af því að við tökum upp þessa gerð; hann fór ágætlega yfir áhyggjur sínar af því og hvernig hann fékk bót á þeim. Ég er ekki búinn að því, ég er ekki albata (ÓBK: Það kemur.) eins og hv. þingmaður.

Það hefur komið fram að 7., 8. og 9. gr. reglugerðar 713/2009 feli í sér afsal til yfirþjóðlegs valds sem er mikið áhyggjuefni og Stefán Már Stefánsson prófessor ámálgaði það í áliti sínu og hans meðritari. Mig langar að spyrja hv. þingmann: Fyndist honum ekki bara eðlilegra að við undanskiljum þessar þrjár greinar í reglugerð 713/2009, til að taka af öll tvímæli um að Íslendingar hafi full og óskoruð yfirráð yfir auðlindum sínum? Finnst honum ekki koma til greina að þetta yrði tekið fyrir í nefnd þegar þessum málflutningi lýkur og að tekið yrði til þessa?