ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Mér er ljúft og skylt í upphafi að bera blak af sitjandi forseta. Hann hefur ekki tekið undir það að við göngum úr EES. Ég var hér í salnum fyrr í dag, þegar hv. þingmaður var í ræðustól, og það sem hann sagði var að hann væri til í þá umræðu; hann er til í umræðu um kosti og galla þess að ganga úr EES. Það skulum við ræða og ég er til í þá umræðu líka, hv. þingmaður, hvenær sem er. Ég stend með EES. Ég geri mér grein fyrir því hversu mikilvægur EES-samningurinn er með þeim göllum sem eru á samningnum, ég skal viðurkenna það. Hluti af göllunum er okkur sjálfum að kenna vegna þess að við höfum ekki sinnt því verki sem við ættum að vera að vinna, bæði hér í þessum sal og í þingnefndum.
Ég vona að hv. þingmaður, eftir því sem þingið vinnur málið og þingnefndir, fari í gegnum þetta sama ferli og ég og nái niðurstöðu með svipuðum hætti og ég.
Ég vil fá að vitna aftur í Stefán Má Stefánsson. Það er að vísu heldur ekki hluti af þingskjölum en það er hluti af frétt sem birt var af Stjórnarráðinu eftir að fyrir lá með hvaða hætti ríkisstjórnin, undir forystu hæstv. utanríkisráðherra, hafði ákveðið að leggja þetta mál hér upp, þ.e. að hafa lagalega fyrirvara um lagningu sæstrengs. Þá segir Stefán Már Stefánsson, með leyfi hæstv. forseta:
„Með þessari leið er stjórnskipunarvandinn settur til hliðar að sinni og reglugerðin innleidd á þeim forsendum að þau ákvæði hennar sem fjalla um flutning raforku yfir landamæri eigi ekki við hér á landi og hafi því ekki raunhæfa þýðingu.“
Þetta er álit Stefáns Más Stefánssonar eftir að hann var búinn að lesa og kynna sér þingmálin fjögur sem liggja hér fyrir.