ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þetta andsvar. Ég deili með honum aðdáun á EES-samningnum og hef ekki rætt það, hvorki hér úr ræðustól né í riti, að honum beri að segja upp nema síður sé. Hv. þingmaður fór mjög vel yfir málin í ræðu sinni — og nota bene, ég sagði það ekki áðan en ég hlakka mjög til að heyra hinn helminginn af ræðunni því að sá fyrri var alveg rosalega góður — og ég hjó eftir öðru atriði.
Hann minntist á samkeppnishæfni íslensks iðnaðar. Svo vill til að Norðmenn eru komnir aðeins lengra en við í að innleiða orkupakkann en norskir iðnrekendur hafa einmitt kvartað mjög yfir því að orkuverð hafi hækkað svo mikið að þeir séu að verða verr búnir undir samkeppni en áður var. Þá segi ég aftur, hv. þingmaður: Er ekki ástæða til þess að við búum svo um hnúta að þannig fari ekki hjá okkur, að við lendum ekki í massífum hækkunum á raforku til almennings og iðnaðar þannig að við verðum ósamkeppnishæf?