ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Nú er það að vísu þannig að staða okkar og skipulag raforkumála hér á Íslandi er allt annað en í Noregi. Noregur tengist meginlandi Evrópu í gegnum sæstreng. Það mun vera, þó að ég sé ekki sérfræðingur í norskum raforkumálum, helsta ástæða þess að raforkuverð í Noregi hefur hækkað með þeim hætti sem hv. þingmaður vitnaði til.
Þetta er ein ástæða þess að ég hafði áhyggjur af því hvað myndi gerast hér þegar kæmi að raforkuverði til íslenskra heimila og íslenskra fyrirtækja. Það er ljóst að með því að setja inn þann lagalega fyrirvara að sæstrengur verði ekki lagður nema meiri hluti Alþingis samþykki það getum við verið trygg um að þriðji orkupakkinn, þriðja orkutilskipunin, mun ekki hafa áhrif á raforkuverð hér á Íslandi, ekki til hækkunar en kannski til lækkunar.