149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:42]
Horfa

Forseti (Brynjar Níelsson):

Af því að það kom til umræðu hvað forseti sagði í ræðustól fyrr í dag þá man forseti ekki mikið hvað hann sagði, en telur mjög ólíklegt að hann hafi verið þeirrar skoðunar að hann teldi rétt að ganga úr EES-samstarfinu. Hafi hann sagt það er meira að en hann hélt. (Gripið fram í.)