ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Það er svo sem allt í lagi að hv. þm. Birgir Þórarinsson noti orðið spjall þegar ráðamenn íslensku þjóðarinnar hitta hina æðstu embættismenn Evrópusambandsins, líkt og það sé bara á einhverju kaffihúsi eða bar. Það er auðvitað ekki þannig. Þetta er formlegt samtal. Það er vont þegar kjörnir fulltrúar, alþingismenn, gera lítið úr því þegar ráðamenn íslensku þjóðarinnar eiga formleg samtöl við aðra ráðamenn, hvort heldur það er í öðrum löndum eða alþjóðasamtökum.
Ég ætla að vitna aftur í Stefán Má Stefánsson vegna þess að hann er öðrum mönnum kærari í hugum Miðflokksþingmanna og ég hef fullan skilning á því. Ég tek nefnilega mikið mark á Stefáni Má Stefánssyni sem hefur verið einna íhaldssamastur þegar kemur að stjórnskipulegum fyrirvörum og álitamálum er viðkoma framsali fullveldis, enda er nauðsynlegt að menn séu alltaf á varðbergi í þeim efnum. En hann segir í frétt eða frásögn sem birtist á vef Stjórnarráðsins, með leyfi hæstv. forseta:
„Það er enn fremur mikilvægt að náðst hafi með orkumálastjóra Evrópusambandsins sameiginlegur skilningur hvað þessa grundvallarforsendu Íslands varðar og sérstöðu Íslands. Þótt slík yfirlýsing sé pólitísk í eðli sínu þá hefur hún engu að síður verulegt gildi og þýðingu í þessu samhengi“
Mér finnst vont þegar þingmenn í þessum sal reyna að grafa undan mikilvægi þess þegar átt eru samtöl (Forseti hringir.) sem skipta máli, sem skipta Ísland máli og skipta íslenska hagsmuni máli, og gera þau lítil og léttvæg og jafnvel hafa hæðnistal um það.