149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:47]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég vil leiðrétta það ef það hefur komið þannig fram og hv. þingmaður hefur skilið orð mín sem svo að ég væri að gera lítið úr því að utanríkisráðherra hefði hitt orkumálastjóra Evrópusambandsins. Það gerði ég ekki. Ég sagði að þetta væri spjall vegna þess að þeir ræddu væntanlega saman. Það sem fór þeim á milli hefur enga þýðingu vegna þess að þjóðréttarlega verður þetta að vera einhvers konar bókun sem er síðan tekin upp í EES-samninginn, til þess að það hafi einhverja þýðingu.

Ég er mjög hlynntur því að ráðamenn ræði við erlenda samstarfsaðila sína og tel t.d. að hæstv. utanríkisráðherra hefði átt að beita sér mun meira í svokölluðu hráakjötsmáli. Ég spurði hann (Forseti hringir.) hvort hann hefði rætt við félaga sinn í Evrópusambandinu hvað þetta varðar og hann sagðist í andsvari hafa hringt í utanríkismálastjóra Evrópusambandsins. Ég tel það ekki nægilegt, (Forseti hringir.) engan veginn nægilegt. Ég tel heldur (Forseti hringir.) ekki nægilegt að þeir hafi rætt saman núna um þetta mál. Það hefði þurft að vera með miklu afgerandi hætti og með bókun (Forseti hringir.) sem hefði verið hægt að nota í framhaldi málsins.