ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég er komin hér í og með til að biðja hæstv. forseta velvirðingar á því að hafa tönnlast dálítið á því að hann hafi haft uppi ákveðin ummæli í dag þar sem hann gat ekki svarað mér. Það var ónærgætið og ég bið hæstv. forseta velvirðingar á því. Hins vegar er það rétt og við munum geta farið yfir það saman, ég og hæstv. forseti, að hann hafði á orði í dag í ræðu að hann væri alveg til þess fús að segja upp EES-samningnum. Þar sem forseti segir, og ég trúi orðum hans vel, að hann muni ekki þau ummæli sín, getum við sem best farið yfir þau saman þegar þetta liggur fyrir uppskrifað. En ég ítreka að það var ónærgætið af mér að halda þessu fram við forseta þegar hann á óhægt um vik að svara mér.