149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:51]
Horfa

Forseti (Brynjar Níelsson):

Forseti vill taka fram af þessu tilefni að það er almennt þannig að minni hans er mjög brigðult, hann man ekki alltaf hvað hann sagði, en ég held að þarna vanti hluta af setningunni sem hv. þingmaður vitnar til um að ég gæti hugsað mér að ganga úr EES. Væntanlega væri ég tilbúinn til þess ef það þjónaði ekki hagsmunum okkar. Þetta mun örugglega sjást í ræðunni ef við förum yfir það saman, hv. þingmaður.