ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Þótt mér finnist Miðflokkurinn vera í ansi vafasömum erindagjörðum í þessu máli þá er það staðreynd að ýmsir hafa lýst yfir áhyggjum af því hvað þessi orkupakki hefur í för með sér. Þessar áhyggjur virtust ekki vera til staðar við samþykkt fyrsta og annars orkupakkans enda kannski færri stjórnmálaflokkar sem sáu sér leik á borði við að þyrla upp ryki þá. En gott og vel. Áhyggjurnar eru til staðar og þá er eðlilegt að við svörum þeim. Vandamálið er eins og svo oft áður að þetta er sæmilega flókið mál og flestir hafa ekki tíma og kannski ekki næga þekkingu til þess að kynna sér tillögutextann sem slíkan og jafnvel þeir sem hafa lesið í gegnum hann hafa kannski lent í vandræðum vegna þess hve tyrfinn hann er. Þá er gríðarleg hætta á að rangar upplýsingar komist í umræðuna. Til að mynda gengur nú á netinu niðurstaða úr skoðanakönnun Capacent þar sem segir að 80% Íslendinga vilja ekki færa aukið vald yfir orkuauðlindum til evrópskra stofnana. Ég er alveg sammála því. En það vantar inn í umræðuna þá einföldu en gríðarlega mikilvægu staðreynd að það er ekkert í þriðja orkupakkanum sem felur í sér færslu valds yfir orkuauðlindum til evrópskra stofnana. En auðvitað er fólk hrætt ef þetta er það sem það heyrir.
Ég ætla að hafa þetta eins skýrt og ég mögulega get. Þriðji orkupakkinn felur ekki í sér framsal á valdi yfir orkuauðlindum. Hann felur ekki í sér kröfu um lagningu sæstrengs. Hann gengur töluvert skemur í samræmingu á regluverki en mörg önnur mál sem við höfum tekið fyrir á Alþingi á síðustu mánuðum. Hann felur vissulega í sér, í því undantekningartilviki að upp komi deilumál um orkudreifingu eða orkureglun milli tveggja eða fleiri aðildarríkja EES-samningsins og þau ná ekki að leysa úr því á eigin spýtur, að evrópska samráðsstofnunin ACER sé til staðar sem gerðardómur. Það að gagnrýna þetta fyrirkomulag án þess að gagnrýna aðild okkar að Alþjóðaviðskiptastofnuninni og öðrum stofnunum sem hafa slíkt úrskurðarvald er svolítið mótsagnakennt. Og það verður að segjast að sniðmengi þeirra sem tala gegn þriðja orkupakkanum á grundvelli þess að við þurfum að hafa stjórn á auðlindum okkar og þeirra sem töluðu gegn upptöku auðlindaákvæðis á sínum tíma í stjórnarskrá, er stórkostlega áhugavert. Það eru greinilega sumir sem vita ekki hvað þeir vilja.
Forseti. Nú virðast áhyggjurnar helst snúa að neikvæðum afleiðingum þess að raforkusæstrengur verði lagður milli Íslands og einhvers annars lands. Aðallega hefur verið talað um Bretland í því samhengi. En höfum í huga að það er ekki ljóst hvort Bretland verði í Evrópusambandinu eftir þrjá daga, hvað þá lengur. Mér finnst við þurfa þó að ræða aðeins um eðlisfræði og hagfræði sæstrengja. Allra stysti mögulegi sæstrengur milli Íslands og Bretlands yrði um 100 km lengri en lengsti raforkusæstrengur heims. Ef leggja ætti raforkusæstreng til þess lands sem verður án nokkurs vafa innan EES-svæðisins eftir meira en þrjá daga þá þyrfti hann að vera a.m.k. 300 km lengri en lengsti raforkusæstrengur heims. Þá erum við komin til Noregs. En til að komast til Hollands, sem mörgum þykir líklegri lokapunktur, þyrfti sæstrengurinn að vera tvöfalt lengri en lengsti raforkusæstrengur heims. Hvaða máli skiptir lengdin? Jú, í rafleiðurum verður sóun á rafmagni í formi hita sem minnkar eftir því sem spennan eykst. Í svokölluðum HVDC-línum eins og notaðar eru í sæstrengjum er að jafnaði reiknað með 3% hitatapi á hvern 1.000 km. Þetta takmarkar jafnframt raunburðargetu í kringum 70–80% af heildarburðargetu vegna þess að það er ekki hægt að hafa hann alltaf of heitan. Þetta þýðir svo sem ekki að það sé ómögulegt í sjálfu sér að leggja sæstreng, en eftir því sem hann verður lengri verður hann bæði dýrari í framleiðslu og rekstri og tapið verður meira. Og tap á einum tuttugusta af raforkunni í það verk að hita upp Atlantshafið er frekar klunnalegt.
Þessi eðlisfræði skiptir aðallega máli í því samhengi, ef maður skoðar t.d. vefsíður þeirra sem eru bjartsýnastir gagnvart þessu, að reiknað er með raforkuverði upp á 65 pund á megavattstund. Þetta verð skýrist náttúrlega af kostnaði við sæstreng og afskriftakröfum og ýmsu, en raforkuverðið í Bretlandi í dag er 43 pund á megavattstund. Raforkan þyrfti að vera 30% dýrari en orkan sem selst í Bretlandi til að þetta myndi ganga upp. Ég er ekki viss um að neinn vilji kaupa orkuna á slíku verði. En þá á eftir að taka inn í reikningsdæmið að sólarorka hefur fallið í kostnaði um 30% á síðustu 12 mánuðum og vindorka um 18%. Sú sviðsmynd þar sem raforkusæstrengur til Bretlands, hvað þá til Evrópu, gengur upp, er ekki til. Á þeim grundvelli einum og sér og jafnvel með frekar stífum lestri á 8. gr. reglugerðar nr. 713/2009, sem sumir hafa vísað í, væri full ástæða til að hafna lagningu slíks sæstrengs.
Forseti. Sambærilegar áhyggjur komu upp í Noregi þegar málið var til meðferðar þar. Raunar virðast ræðupunktar helstu andstæðinga þriðja orkupakkans í Noregi hafa verið teknir beint upp í málflutning íslenska Miðflokksins frá norska Miðflokknum. Þetta er auðvitað bara tilviljun, er það ekki? Áhyggjunum í Noregi var svarað ágætlega. Þegar öll rökin gegn pakkanum sem við höfum heyrt undanfarið höfðu verið hrakin var ekkert eftir nema að undirbúa og undirrita pólitískt samkomulag milli flestra flokka í norska Stórþinginu um hvað mætti og mætti ekki í kjölfar samþykktarinnar. Ég hef það samkomulag undir höndum, fékk það frá norskum þingmanni sem var framsögumaður þriðja orkupakkans í norska Stórþinginu. Ég legg til, ef þetta er raunverulegt vandamál, að við sammælumst bara um að taka hreinlega upp þá vinnu og nýta okkur hana enda stendur í henni ýmislegt sem gæti hentað vel á Íslandi. Til dæmis segir í 3. tölulið samkomulagsins að íslensk stjórnvöld, ef ég staðfæri, það stendur náttúrlega norsk stjórnvöld þarna, skuli hafa fullt yfirráð yfir ákvörðunum sem varða orkuöryggi á Íslandi, þar með talið það sem snýr að iðnaði og aftengingu afls. Íslensk endurnýjanleg orka skal vera nýtt til verðmætasköpunar og atvinnuþróunar á Íslandi og til að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis. Þetta er allt eitthvað sem við ættum að geta tekið undir.
Þá blasir auðvitað við annað vandamál. Það er nefnilega þannig að í norska Stórþinginu vildi Miðflokkurinn þar ekki taka þátt í svona samkomulagi. Ætla má að íslenski Miðflokkurinn yrði kannski ekki líklegur til þess heldur. Það er vegna þess að markmiðið er ekki að stöðva þennan tiltekna orkupakka heldur er markmiðið að grafa undan EES-samningnum. Það hefur sést mikið í umræðunni undanfarna daga. Ég myndi vilja að fólk væri heiðarlegt með það. Að vísu var ágætt að hv. þm. Inga Sæland gekkst við því áðan að vilja frekar slíta EES-samningnum en að samþykkja bætta neytendavernd í raforkumálum, en ekki hafa aðrir sagt svipaða hluti. Gott og vel. Það eru kannski ekki allir sem vilja að við njótum árangurs íslensks hagkerfis síðustu 25 ár.
Mér hugnast EES-samningurinn mjög vel enda skiptir hann okkur alveg gríðarlega miklu máli. Það væri betra fyrir umræðuna ef hv. þingmenn væru með ákveðin grundvallaratriði í því á hreinu. Til að mynda heyrði ég í gær ákveðinn hv. þingmann tala um fimmta frelsi Evrópusambandsins. Það eru fjögur frelsi í Evrópusambandinu. Ég hef reyndar talað fyrir því að upplýsingarfrelsi verði sett á sem fimmta frelsið, en það hlustar svo sem enginn á mig eins og sést á þessum hálftóma sal. (Gripið fram í: Ráðherrann.) Nema ráðherrann að vísu. En ef við getum ekki haft svona staðreyndir á hreinu þá er ansi erfitt að eiga upplýstar samræður um þessi mál.
Ég ætla að taka þetta saman. Í fyrsta lagi. Það eru engar lagalegar kröfur í þessum þriðja orkupakka sem við þurfum að hafa áhyggjur af.
Í öðru lagi. Það eru engar tæknilegar forsendur fyrir því að sæstrengur verði lagður í augnablikinu og jafnvel þó að svo væri þá væru engar hagfræðilegar forsendur fyrir því vegna þess að raforkan yrði of dýr.
Í þriðja lagi. Það er enginn pólitískur vilji, held ég, til að valda Íslandi þeim skaða sem andstæðingar þriðja orkupakkans telja að sé óhjákvæmilegur. Það er hægt að slá á þann ótta með sömu aðferð og Norðmenn beittu.
Að lokum er afskaplega hvimleitt að þessi umræða ber þann sterka keim að vera fyrst og fremst til höfuðs EES-samningnum vegna þess að menn þora kannski ekki í það að ráðast gegn samningnum sjálfum eins og hann liggur fyrir. Það er frekar léleg pólitík. Ef fólk hefur eitthvað út á EES-samninginn að setja þá væri betra að það myndi eiga umræðu um það, tæki þá umræðu. Þá gætum við komið hingað með allar tölurnar um það hvað EES-samningurinn hefur skilað okkur ótrúlega miklu á undanförnum 25 árum. Það er leiðinlegt þegar fólk notar svona mál til að þyrla upp ryki. Það er óþarfi.