149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[19:02]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Hann er kominn hingað inn í sali Alþingis þessi margumtalaði þriðji orkupakki sem margir hafa sterkar skoðanir á. Þessi pakki, ef ég má nota það orð yfir þær tillögur til þingsályktunar og frumvörp sem við fjöllum nú um, er hreint ekki auðlesinn og þaðan af síður auðskilinn. Í tillögunni kemur fram að Alþingi álykti að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017 frá 5. maí 2017, um breytingu á IV. viðauka, sem fjallar um orku, við EES-samninginn frá 2. maí 1992 og fella inn í samninginn tilteknar gerðir. Svo eru taldar upp fjórar reglugerðir Evrópuþingsins, tvær tilskipanir þess og tvær ákvarðanir framkvæmdastjórnarinnar, sem ganga út á að breyta og bæta við viðauka tiltekinna reglugerða Evrópuþingsins. Hér er því verið að innleiða ákvörðun nefndarinnar um að fella inn í EES-samninginn fjórar tilteknar reglugerðir og tvær tilskipanir sem einu nafni hafa verið kallaðar þriðji orkupakkinn.

Herra forseti. Síðar í dag í þinginu munum við fjalla um frumvarp til breytingu á raforkulögum þar sem skotið er inn í ákvæði um að tenging raforkukerfis landsins við raforkukerfi annars lands fara eftir stefnu stjórnvalda, þ.e. stjórnvalda hér á landi.

Herra forseti. Hvert er gildi þessa? Hvert er gildi þessa ákvæðis gagnvart þeim þjóðréttarlegu skyldum sem við öxlum við að allar gerðir Evrópusambandsins hvað þetta varðar eru innleiddar eins og sameiginlega EES-nefndin afgreiddi þær í okkar hendur? Þar á meðal er 8. gr. reglugerðar nr. 713/2009, sem mest hefur verið í umræðunni um að við þurfum að gæta okkar á í sambandi við að ganga í berhögg við stjórnarskrána, þ.e. að hér sé valdframsal til ESA sem rúmist ekki innan stjórnarskrár Íslands. Hvert er þjóðréttarlegt gildi þessa fyrirvara sem Alþingi ætlar að setja í raforkulögin? Hvaða fræðimenn hafa gefið álit sitt á gildi þessa fyrirvara sem við stöndum hér frammi fyrir? Hafa fræðimenn fjallað um það, herra forseti? Nei, það hafa þeir ekki gert, nema að því leyti sem Stefán Már Stefánsson prófessor og Friðrik Árni Friðriksson Hirst hafa gert þegar þeir lögðu fram þessa lausn sem lakasta, já, lakasta og síðasta kostinn, til að reyna að brúa hinn stjórnskipulega vanda sem fyrir höndum er í málinu. Þeir hnýttu auk þess við að þessi leið væri ekki gallalaus.

Herra forseti. Það sem Stefán Már Stefánsson prófessor segir um þennan kost og má finna í frétt á vef Stjórnarráðsins, sem hæstv. utanríkisráðherra sagði ranglega vera meðal gagna málsins, er eftirfarandi og vitna ég beint í þá frétt, með leyfi forseta:

„Með þessari leið er stjórnskipunarvandinn settur til hliðar að sinni og reglugerðin innleidd á þeim forsendum að þau ákvæði hennar sem fjalla um flutning raforku yfir landamæri eigi ekki við hér á landi …“

Herra forseti. Hvað ef þessar forsendur standast ekki? Og hvað þýðir það að vandinn sé lagður til hliðar að sinni? Hvenær gæti þetta tímamark birst okkur?

Síðar segir Stefán, með leyfi forseta:

„Grunnforsenda þessarar lausnar er sú að þriðji orkupakkinn leggi ekki skyldur á Ísland til að koma á fót grunnvirkjum yfir landamæri heldur sé ákvörðun um það alfarið á forræði Íslands.“

Herra forseti. Hvað ef þessi forsenda sem prófessorinn nefnir brestur og þetta reynist ekki á forræði Íslendinga vegna hinna þjóðréttarlegu skuldbindinga sem við tökumst á hendur? Leggur þriðji orkupakkinn þessar skyldur á okkur, herra forseti? Ég bara spyr. Er það rétt að verið sé að gefa það í skyn að þriðji orkupakkinn leggi einhvers konar skyldur á Ísland að koma grunnvirkjum yfir landamæri til að mynda ef eftir því yrði leitað? Er verið að gefa það í skyn með þessum orðum prófessorsins?

Loks segir hann um sameiginlegan skilning orkumálastjóra Evrópusambandsins og ráðamanna hér heima, með leyfi forseta:

„Þótt slík yfirlýsing sé pólitísk í eðli sínu þá hefur hún engu að síður verulegt gildi og þýðingu í þessu samhengi.“

Já, yfirlýsingin hefur gildi. En nægir þessi pólitíska yfirlýsing til að landa málinu farsællega með tilliti til þess að það koma nýir herrar og lagatextinn lifir sjálfstæðu lífi óháð því hverjir sitja á valdastólum hverju sinni?

Herra forseti. Hafa fræðimenn gefið frekari eða ítarlegri álit á þessari leið? Nei, þeir hafa ekki einu sinni verið spurðir. Þessi staða vekur upp ýmsar spurningar. Af hverju hefur þessi leið ekki verið rannsökuð frekar en raun ber vitni? Vita menn hvert þeir eru að fara? Ef menn vita ekki hvert þeir eru að fara þá skiptir reyndar engu máli hvaða leið þeir velja því þeir lenda þá bara einhvers staðar og stundum á óvæntum stað.

Eitt af því sem fylgjendur þessa máls hafa ítrekað bent á er að mest af þessum þriðja orkupakka snerti okkur Íslendinga ekki neitt þar sem okkar raforkukerfi er ekki tengt raforkukerfinu í Evrópu. Einnig er því haldið fram að yfirþjóðlegt vald samkvæmt löggjöfinni snerti okkur ekki af sömu ástæðum. Helstu annmarkar sem fræðimenn finna á löggjöfinni eru einmitt þessi atriði, hvort valdframsalið sé með þeim hætti að það samrýmist ekki ákvæðum stjórnarskrár lýðveldisins Íslands að slíkri stofnun, ESA, sé falið vald til að taka lagalega bindandi ákvarðanir svo snerti einstaklinga eða lögaðila hér á landi. Á móti segja menn að þetta skipti ekki máli þar sem við séum ekki tengd raforkumarkaði Evrópu, við séum ótengd, og varði því ekkert um þessar reglur og þær eigi ekki við fyrr en við erum tengd.

Herra forseti. Því spyr ég: Af hverju erum við þá að innleiða þetta? Af hverju? Þetta er einföld spurning. Og svörin eru: Af því bara. Og ég endurtek þess vegna: Af því barasta hvað? Þetta þarfnast nánari útskýringa. Þetta leiðir okkur óhjákvæmilega að þeirri spurningu hvort ekki sé skynsamlegra að hafna þeim pörtum pakkans sem mestar efasemdir eru um, það er reglugerð nr. 713/2009, um valdsvið ACER. Það kemur, leyfi ég mér að segja, afskaplega skýrt fram í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar frá 5. maí 2017 að þessi stofnun Evrópusambandsins hefur á vissan hátt boðvald yfir Eftirlitsstofnun EFTA-ríkjanna, ESA, sem vekur einnig upp fjölmargar spurningar. Sama má að nokkru segja um reglugerð nr. 714/2009. Hér á einnig við að íhuga að hafna upptöku á sérstaklega 37. gr. tilskipunar nr. 72 /2009, en í þeirri grein eru verkefni og skyldur innlendra eftirlitsaðila tíundar, en í d-lið 1. mgr. þeirrar greinar er eftirlitsaðila hér á landi uppálagt að framkvæma ákvarðanir stofnunarinnar og er þar vísað til ESA, nú eða ACER, eftir því hvernig litið er á hlutina. Og þessi skylda innlenda eftirlitsaðilans, hér Orkustofnunar, snertir ákvarðanir sem nefndar eru í 7., 8. og 9. gr. fyrrnefndrar reglugerðar nr. 713 og eru lagalega bindandi. Hvað er því til fyrirstöðu að hafna þessum tiltekna hluta af regluverkinu sem sannarlega hefur staðið mest í fræðimönnum? Hvað er að því, herra forseti? — Ég sé að tími minn er á þrotum.